Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Kjartan Kjartansson skrifar 13. maí 2026 09:33 Vinningstillaga að hönnun Skólabrúar í Vogabyggð felur í sér að mannvirki fyrir grunnskóla, leikskóla og íþróttamiðstöð verði byggð inn í göngu- og hjólabrú yfir Elliðaárvog. OMNO ehf. Meirihlutinn í borgarstjórn samþykkti hönnun nýs skóla í Vogabyggð og viljayfirlýsingar um umfangsmikla íbúðauppbyggingu á sérstökum aukafundi sem boðað var til í borgarstjórn með skömmum fyrirvara. Minnihlutinn gagnrýndi að svo stór verkefni væru samþykkt rétt fyrir kosningar.
Aukafundur borgarstjórnar fór fram á mánudag en boðað var til hans á föstudag. Á honum samþykktu fulltrúar meirihlutans atriði úr fundargerð borgarráðs frá því í síðustu viku. Þannig samþykkti meirihlutinn hönnun svonefndrar Skólabrúar í Vogabyggð sem metin er á hálfan milljarð króna. Skólabrú-Fleyvangur er rúmlega 8.400 fermetra mannvirki fyrir leikskóla, grunnskóla, íþrótta- og félagsmiðstöð, frístundaheimili og göngu- og hjólabrú. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þeir fyrrnefndu bókuðu áhyggjur sínar af því að eitt stærsta og flóknasta uppbyggingarverkefni borgarinnar á síðari árum væri lagt fram örfáum dögum fyrir borgarstjórnarkosningar. „Óábyrgt er af fráfarandi meirihluta að ýta af stað verkefni af þessari stærðargráðu á þessum tímapunkti, þegar ljóst er að enn á eftir að vinna mikla forvinnu og greiningu varðandi aðstæður og kostnað,“ segir í bókun sjálfstæðismanna. Vilja að ný borgarstjórn taki afstöðu til framkvæmdarinnar Kostnaður við Skólabrú er áætlaður tæpir fimmtán milljarðar króna með vikmörk upp í rúmlega nítján milljarða. Hönnun mannvirkisins á ekki að ljúka fyrr en árið 2029 og framkvæmdum árið 2035. Sjálfstæðismenn benda einnig á að ekki hafi verið lokið við að greina nægjanlega umfang mengaðs jarðvegs á svæðinu þrátt fyrir að förgun hans sé talin einn stærsti kostnaðarliðurinn. „Best færi á því að ný borgarstjórn tæki afstöðu til verkefnis af þessari stærðargráðu að loknum kosningum og nánari greiningu á umfangi verkefnisins,“ segir í bókuninni. Hildur Björnsdóttir og félagar í Sjálfstæðisflokknum greiddu atkvæði gegn hönnun Skólabrúar í Vogabyggð og viljayfirlýsingum um uppbyggingu félagslegs íbúðahúsnæðis á aukafundi borgarstjórnar í vikunni.Vísir/Vilhelm Framsóknarmenn bókuðu einnig mótbárur sínar þó að fulltrúar hans hefðu kosið að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillöguna. Kostnaðurinn við framkvæmdin væri afar óljós. Þó að mikilvægt væri að sýna metnað í byggingu grunnskóla teldu þeir brýnt að skólinn risi sem fyrst. Þeir hefðu viljað fá samanburð við hagkvæmari kosti sem gætu risið fyrr en árið 2035. Þeir bókuðu einnig andmæli sín við því að meirihlutinn stefndi að því að taka yfir ræstingar í húsnæði borgarinnar. Framsóknarmenn telja það fela í sér umtalsverðan kostnaðarauka fyrir borgina. Hampa sér fyrir að samþykkja uppbygginguna Meirihlutinn samþykkti einnig þrjár viljayfirlýsingar um íbúðauppbyggingu og úthlutun lóða til hennar á aukafundinum. Borgin veitti vilyrði fyrir því að Félagsbústaðir reisi allt að 345 íbúðir á sextán lóðum og svæðum í Reykjavík til 2032, þar á meðal í Gufunesi, Úlfarsárdal, Kjalarnesi og Keldum. Sömuleiðis samþykkti meirihlutinn að auka eigið fé Félagsbústaða. Viljayfirlýsingar með Visku, stéttarfélagi háskólamenntaðra, Félagi íslenskra náttúrufræðinga og Bjargi íbúðafélag fela einnig í sér úthlutunum á lóðum til íbúðauppbyggingar. Fulltrúar meirihlutans bókuðu sérstaklega hversu stoltir þeir væru af viljayfirlýsingunum og því sem þeir kölluðu raunverulegum skrefum til þess að fjölga íbúðum í borginni. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn fyrir að greiða atkvæði gegn viljayfirlýsingunum í aðsendri grein á Vísi í morgun. „Það er athyglisvert að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks kusu gegn þessum aðgerðum. Á sama tíma og húsnæðisvandinn vex virðist enn vera pólitísk tregða hjá hægrinu gagnvart því að borgin taki virkan þátt í að tryggja fólki öruggt húsnæði,“ skrifaði fráfarandi borgarstjóri.
Reykjavík Borgarstjórn Húsnæðismál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira