Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Jakob Bjarnar skrifar 18. maí 2026 14:46 Guðmundur Árni segir enga eftirspurn eftir sér og hann horfist óhikað í augu við þá staðreynd. vísir/vilhelm Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta í pólitík. Hann gerir því skóna að nýr varaformaður flokksins verði valinn á næstunni á flokksráðsfundi.
Segja má að Guðmundur Árni hafi reynst senuþjófur kosninganæturinnar en strax eftir að fyrstu tölur lágu fyrir í Hafnarfirði gaf hann það til kynna að hann myndi hugsa sinn gang. Og nú liggur þetta fyrir. „Ég er enginn moðsuðumaður,“ segir Guðmundur Árni í samtali við Vísi og það er sannarlega rétt. Hann mun ekki taka sæti í nýrri bæjarstjórn heldur eftirláta sætið varamanni flokksins, Árna Rúnari Þorvaldssyni. Árni Rúnar var í þriðja sæti en náði ekki kjöri, Samfylkingin náði aðeins tveimur mönnum og var langt frá markmiðum sínum. „Öllum er mörkuð stund og nú er minn tími kominn,“ segir Guðmundur Árni sem á að baki litríkan stjórnmálaferil og er fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði með meiru. „Ég hef unnið marga góða sigra í Hafnarfirði. Kom aftur eftir sextán ára hlé, sem sendiherra úti í heimi. Það gekk vel fyrir fjórum árum en nú afleitlega.“ Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði á þvílíku flugi Guðmundur Árni frýjar sig ekki ábyrgð á stöðunni: „Ég ber ábyrgð á því. Ekki flokkurinn, ekki fólkið mitt sem barðist eins og ljón. En þetta er eins og í lífinu sjálfu, þar gengur á ýmsu. Þetta er mér að kenna og ég stíg frá borði. Það er hreinlega ekki eftirspurn eftir mér lengur. Og þá snýr maður sér að öðru. Kannski golfi? Þó að ég geti ekki neitt.“ Guðmundur Árni segir fjölmargar skýringar á þessu slaka gengi en hann horfi fyrst og fremst á Hafnarfjörð hvað sig varði. Það hafi verið ákall frá hægri. „Framsóknarflokkurinn var á þvílíku flugi og tekur augljóslega atkvæði frá okkur. Og Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn. Þetta er ákall um að þessi meirihluti haldi áfram.“ Enginn kemst í hálfkvisti við Kristrúnu Guðmundur veltir því fyrir sér hvort í þessu gengi felist ákall á landsvísu. „Við verðum að hugsa okkar gang. Stundum gerist það í pólitíkinni að í niðurstöðu í sveitarstjórnarkosningum felist óbein skilaboð til landstjórnarinnar. Fylgi flokksins hefði mátt vera meira. Sums staðar er þó ljós að finna.“ Guðmundur Árni segir að ekki séu alltaf jólin í pólitíkinni.vísir/vilhelm Varaformaðurinn vill láta það koma skýrt fram að hann hefur látið Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar vita hug sinn. „Hún er langsterkasti stjórnmálaleiðtogi sem þjóðin á. Hún ber af í samanburði við aðra stjórnmálaleiðtoga. Að hennar beiðni tók ég mér að verða varaformaður þegar hún tók við flokknum. Ég vildi leggja henni gott lið, hún ung kona og ég gamall hundur. Við höfum unnið saman sem einn maður.“ Eyðir ekki orðum í „kvak“ Ingibjargar Sólrúnar En nú hyggst Guðmundur Árni láta gott heita á þeim vettvangi líka. Hann telur að nú þurfi að yngja upp í forystunni og nýr varaformaður verði kjörinn á næstu mánuðum þegar Samfylkingin heldur flokksstjórnarfund. „Vaskan mann eða konu sér við hlið. Þetta er allt gert í góðu. Ég kveð þetta svið algjörlega ósár og ber engan kala í brjósti. Ég hef eignast fjölda vina úr öllum flokkum á langri vegferð og ég hefði aldrei viljað hafa þetta öðruvísi. En þetta er upp og niður í pólitíkinni. Það eru ekki alltaf jólin.“ Spurður út í afsökunarbeiðni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem lét hráslagalega athugasemd falla á kosninganótt, segist Guðmundur Árni hafa fengið skilaboð frá henni á Messenger. „Ég eyði ekki orðu á svona kvak,“ segir Guðmundur Árni og snýr sér umsvifalaust að öðrum þarfari hlutum: „Almennt talað er ég á góðu lífi, bjartur og glaður. Það mun birta upp um síðir og jafnaðarmenn munu alltaf ná vopnum sínum á ný. Ég verð í baklandinu áfram og mun áfram leggja hönd á plóg.“
Samfylkingin Hafnarfjörður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Sjá meira