Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. maí 2026 16:11 Hildur boðaði fundinn. Vísir/Vilhelm Fundur kjörinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hófst um tuttugu mínútur yfir þrjú. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fundaði með oddvitum Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut níu kjörna fulltrúa í borginni í sveitarstjórnarkosningunum. Fulltrúarnir níu funda núna í fyrsta skipti eftir kosningarnar og herma heimildir fréttastofu að þessi fyrsti fundur fulltrúanna sé fyrst og fremst til skrafs og ráðagerða. Kjörnir fulltrúar og varaborgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm Fundurinn fer fram í klúbbhúsi Snarfara við Naustavog og gert er ráð fyrir því að hann muni standa yfir í að minnsta kosti eina og hálfa klukkustund. Sjá nánar: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Heimildir fréttastofu herma að Hildur hafi ekki haft samband við Miðflokkinn það sem af er degi. Ekki liggur fyrir hvort að hún hafi haft samband við oddvita Viðreisnar og Framsóknar. Brynjar Níelsson, Bjarni Guðjónsson Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir.Vísir/Vilhelm Hildur hefur þegar gefið út að nýr meirihluti verði kynntur fyrir 3. júní. Tveir kostir í meirihlutasamstarfi eru líklegastir, annars vegar með Miðflokknum sem fékk þrjá kjörna fulltrúa og hins vegar með Viðreisn og Framsóknarflokknum sem fengu samtals þrjá fulltrúa. Brynjar Níelsson alltaf hress.Vísir/Vilhelm Í gær fundaði Hildur með Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar og Ara Edwald, oddvita Miðflokksins. Fundað er í félagsheimili Snarfara.Vísir/Vilhelm „Það fór bara vel á með okkur oddvitunum. Þetta eru oddvitar þeirra flokka sem við köllum borgaralegu öflin í Reykjavík og ég hafði lýst því yfir að mér fyndist rétt að við settumst niður saman,“ sagði Hildur að fundinum loknum. Kaffi sötrað.Vísir/Vilhelm
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Sjá meira