Heiða greinir frá morðhótunum Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 26. maí 2026 13:17 Heiða Björg Hilmisdóttir á borgarstjórnarfundi í dag ásamt Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins. Vísir/Vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri hefur verið hótað lífláti og fengið herta öryggisgæslu síðan hún tók við embættinu. Hún segir gengið hafa á ýmsu og segist hugsi yfir því hvernig talað sé um kjörna fulltrúa hér á landi. „
Ég bara vona að næsti borgarstjóri þurfi ekki að fara í gegnum svona allskonar elda eins og síðustu borgarstjórar hafa þurft að fara í gegnum og ég held að við sem þjóð þurfum líka aðeins að velta fyrir okkur hvernig við tölum um kjörna fulltrúa,“ segir Heiða Björg sem ræddi við fréttastofu að loknum síðasta borgarstjórnarfundi kjörtímabilsins í dag. Hugsar til næstu kynslóð stjórnmálamanna Heiða segir að það hafi verið mikill heiður að hafa fengið traustið að gegna stöðu borgarstjóra. Hún segist telja fráfarandi meirihluta hafa áorkað miklu á stuttum tíma og nýtt tímann töluvert betur heldur en meirihlutinn þar á undan. Gengið hefur á ýmsu þann tíma sem Heiða hefur verið borgarstjóri og segist hún hafa fundið fyrir því. „Það er náttúrulega gríðarlegur heiður að fá að vera kjörinn fulltrúi og það er ofboðslega skemmtilegt og fólk treystir manni fyrir sögum sínum og úrlausnum á flóknum málum en það er líka stundum erfitt að standa í eldlínunni þegar spjótin beinast að þér og við höfum séð mörg slæm dæmi um það, kannski mörg verri en það sem ég hef lent í en þó. Á þessu eina og hálfa ári hefur maður fengið morðhótanir og allskonar fólk sem er á eftir manni og það er kannski ekki það sem manni langar til að fólk þurfi að upplifa sem tekur þetta að sér. Því að lýðræðið náttúrulega virkar þannig að við þurfum öll að geta boðið okkur fram og vera tilbúin til að hlaupa í einhvern tíma og svo tekur einhver annar við og öll erum við bara að vinna að þessu fyrir samfélagið.“ Sextán borgarfulltrúar kveðja borgarstjórn í dag og sextán nýir koma inn í næstu viku. Vísir/Vilhelm Hefur þú þurft að þola morðhótanir? „Ég hef fengið allskonar hótanir já þetta tímabil og það hefur gengið á ýmsu. En ég er bara þakklát fyrir að fá að gegna þessu og hef tekið það á mig en maður hugsar um næstu kynslóð stjórnmálamanna, ég vona að við berum aðeins meiri virðingu fyrir því að fólk er að helga sig þessu í einhvern ákveðinn tíma og það krefst bæði vinnu og orku en líka mikils af fjölskyldu og við þurfum kannski að temja okkur að tala fallegra bara almennt um fólk.“ Þurftirðu að fá lífvörð þegar þær komu, þessar morðhótanir? „Já ég hef verið með á tímabilum aukna gæslu og ég veit að fleiri borgarstjórar hafa fengið það líka.“ Býst við góðu samstarfi við samflokksmenn og nýjan meirihluta Heiða segist ætla að sitja áfram sem borgarfulltrúi. Það sé margt sem hana langi til að klára í borginni, hún brenni fyrir samfélaginu. Það sé margt eftir. Hún segist eiga von á því að eiga í góðu samstarfi við Pétur Marteinsson oddvita síns eigin flokks. „Við tókumst auðvitað á í prófkjöri þannig það er eðlilegt en við höfum átt fínt samstarf það sem af er og ég hlakka til að sjá þennan nýja borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar. Það eru auðvitað miklar breytingar í borgarstjórn, hjá Samfylkingunni og öllum öðrum. Við erum tvö sem höldum áfram og þrjú sem koma ný inn og í dag erum við að kveðja hérna sextán borgarfulltrúa sem eru að hverfa til annarra starfa og svo koma sextán nýir í næstu viku, þannig þetta verður bara spennandi.“ Hvernig líst þér á væntanlegan meirihluta, hann verður væntanlega inn á miðju eða mjög mikið til hægri miðað við vendingar? „Já út frá minni pólitísku sýn er ég miðju, vinstrikona og vill nú helst að við horfum nú alltaf á heildina og tökum ábyrgð hvert á öðru, en ég vona bara að hér komi öflugur meirihluti sem gerir góð verk og ég er bara tilbúin til að starfa með þeim að þeim verkum og veita þeim aðhald ef þau ætla að fara í einhverjar vitlausar áttir. En mér finnst mikilvægt að virða niðurstöðurnar, þetta er lýðræðislega kosinn meirihluti og ég mun styðja þann borgarstjóra í því sem ég get.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfylkingin Borgarstjórn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira