Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. maí 2026 10:02 Oddvitarnir ásamt borgarfulltrúm í Viðey þar sem samstarfið var kynnt. Vísir/vilhelm Náðst hefur samkomulag milli oddvita Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að mynda meirihluta í Reykjavíkurborg. Þetta herma heimildir fréttastofu. Miðflokkurinn hefur ekkert heyrt í oddvita Sjálfstæðisflokksins síðan á föstudag. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Viðey upp úr klukkan ellefu. Reiknað er með því að á fundinum verði oddvitarnir Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum í Viðey. Vísir fylgist með gangi mála í Reykjavíkurborg í sérstakri vakt sem má lesa hér að neðan. Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi sitt í borginni í nýafstöðnum kosningum og fékk níu borgarfulltrúa. Þannig komst Hildur Björnsdóttir í bílstjórasætið í borginni. Hún hefur fundað með Björgu, Einari og Ara Edwald, oddvita Miðflokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Ari ekkert heyrt frá Hildi síðan á föstudag á meðan Hildur hefur átt í samskiptum við bæði Björgu og Einar. Hildur, Björg og Einar bregðast við fyrstu tölum á kosninganótt. Þau stefna á myndun meirihluta í Reykjavík.Vísir/Vilhelm Hildur hefði getað myndað tveggja flokka meirihluta í borginni með Miðflokknum. Sá meirihluti hefði talið tólf fulltrúa eins og meirihluti með Viðreisn og Framsóknarflokknum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði Hildur til skoðunar að reyna að mynda meirihluta með öllum fjórum flokkunum en það varð ekki niðurstaðan. Í fréttaskýringu á Vísi í gær var farið yfir það hvers vegna Hildur gæti verið efins um að fara í meirihluta með Miðflokknum. Ákvörðunin um að mynda meirihluta án Miðflokks mun vafalítið fara illa í stuðningsmenn Miðflokksins og sömuleiðis fjölda Sjálfstæðismanna. Í könnun Maskínu í aðdraganda kosninga kom fram að tæplega helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins vildi helst mynda meirihluta með Miðflokknum. Um fjórðungur kjósenda flokksins var ýmist spenntastur fyrir Viðreisn eða Framsókn. Vísir verður í beinni útsendingu frá Viðey upp úr klukkan ellefu auk þess sem fylgjast má með gangi mála í vaktinni að neðan.
Reiknað er með því að á fundinum verði oddvitarnir Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum í Viðey. Vísir fylgist með gangi mála í Reykjavíkurborg í sérstakri vakt sem má lesa hér að neðan. Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi sitt í borginni í nýafstöðnum kosningum og fékk níu borgarfulltrúa. Þannig komst Hildur Björnsdóttir í bílstjórasætið í borginni. Hún hefur fundað með Björgu, Einari og Ara Edwald, oddvita Miðflokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Ari ekkert heyrt frá Hildi síðan á föstudag á meðan Hildur hefur átt í samskiptum við bæði Björgu og Einar. Hildur, Björg og Einar bregðast við fyrstu tölum á kosninganótt. Þau stefna á myndun meirihluta í Reykjavík.Vísir/Vilhelm Hildur hefði getað myndað tveggja flokka meirihluta í borginni með Miðflokknum. Sá meirihluti hefði talið tólf fulltrúa eins og meirihluti með Viðreisn og Framsóknarflokknum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði Hildur til skoðunar að reyna að mynda meirihluta með öllum fjórum flokkunum en það varð ekki niðurstaðan. Í fréttaskýringu á Vísi í gær var farið yfir það hvers vegna Hildur gæti verið efins um að fara í meirihluta með Miðflokknum. Ákvörðunin um að mynda meirihluta án Miðflokks mun vafalítið fara illa í stuðningsmenn Miðflokksins og sömuleiðis fjölda Sjálfstæðismanna. Í könnun Maskínu í aðdraganda kosninga kom fram að tæplega helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins vildi helst mynda meirihluta með Miðflokknum. Um fjórðungur kjósenda flokksins var ýmist spenntastur fyrir Viðreisn eða Framsókn. Vísir verður í beinni útsendingu frá Viðey upp úr klukkan ellefu auk þess sem fylgjast má með gangi mála í vaktinni að neðan.
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Miðflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira