Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Birgir Olgeirsson skrifar 27. maí 2026 15:34 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir Sjálfstæðisflokkinn hafa sótt fylgi á skarpri breytingastefnu en síðan valið miðjusamstarf með Viðreisn og Framsókn. Vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn hafa fórnað sögulegu tækifæri til að breyta stefnu Reykjavíkurborgar í nafni starfsfriðar og stöðugleika.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ákveðið að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsókn í Reykjavík í stað Miðflokksins. Hann segir sögulegu tækifæri til stefnubreytingar í borginni hafa verið kastað á glæ. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn juku mest við sig í borgarstjórnarkosningunum og hefðu getað myndað tólf manna meirihluta. Niðurstaðan varð hins vegar samstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar. „Mér finnst mjög dapurlegt að þetta stórkostlega tækifæri sé látið fara forgörðum og ekki víst að það komi aftur,“ segir Sigmundur. Hann telur að úrslitin hafi gefið skýrt umboð til að breyta stefnu borgarinnar í skipulags- og samgöngumálum. Að hans mati hafi Sjálfstæðisflokkurinn unnið kosningasigur á málflutningi sem Miðflokkurinn hafi lengi haldið á lofti. „Sjálfstæðisflokkurinn fékk stefnu Miðflokksins lánaða og það gekk svo vel að hann vann glæsilegan sigur. En ekki nóg með það heldur vann Miðflokkurinn glæsilegan sigur út á sömu stefnu,“ segir hann. Kunnugleg rök um starfsfrið Sigmundur segir skýringar um starfsfrið, stöðugleika og breiðari skírskotun ekki sannfærandi. Hann telur þær fyrst og fremst notaðar til að réttlæta að Sjálfstæðisflokkurinn víki frá þeirri stefnu sem flokkurinn hafi kynnt fyrir kjósendum. Hann segir þetta minna sig á þegar Sjálfstæðisflokkurinn myndaði ríkisstjórn með Vinstri grænum og Framsóknarflokknum á Alþingi í nafni stöðugleika. Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson voru glöð í bragði þegar þau handsöluðu áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf sitt í nóvember 2021. VVísir/Vilhelm „Stöðugleiki og starfsfriður; þess vegna er vikið frá stefnunni til að friðþægja aðra. Það er gert í von um að það dugi til að fóðra krókódílana aðeins. Þetta eru grundvallarmistök í pólitík og ég hef séð þetta áður,“ segir Sigmundur. Að hans mati felst í nýja meirihlutanum ekki sú stefnubreyting sem kjósendur hafi kallað eftir. Frekar sé verið að tryggja frið við flokka sem hafi staðið vörð um fyrri stefnu borgarinnar. Segir Friðjónslínuna hafa ráðið för Sigmundur segir niðurstöðuna benda til þess að svokölluð Friðjónslína hafi orðið ofan á innan Sjálfstæðisflokksins. Með því á hann við hófsamari og miðjusæknari nálgun þar sem samstarf við Viðreisn og Framsókn hafi verið tekið fram yfir meirihluta með Miðflokknum. Brynjar Níelsson er nýr borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins en Friðjón Friðjónsson er fráfarandi borgarfulltrúi.Vísir/Vilhelm Hann segir Brynjar Níelsson hafa verið hafðan í forgrunni í kosningabaráttunni til að höfða til kjósenda sem vildu skýrari hægri stefnu í borgarmálum heldur en sú sem Sigmundur vill meina að Friðjón R. Friðjónsson, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafi boðað. Hér má sjá síðustu ræðu Friðjóns sem borgarfulltrúi: Þegar til kastanna kom hafi Sjálfstæðisflokkurinn valið Friðjóns-línuna þegar kom að meirihlutaviðræðum. Efast um breytingar á Borgarlínu Sigmundur segir Borgarlínuverkefnið skýrasta dæmið um takmarkanir nýja meirihlutans. Hann efast um að grundvallarbreytingar verði gerðar á verkefninu þegar Viðreisn er hluti af samstarfinu bæði í borg og ríkisstjórn. „Stóra dæmið er Borgarlínan. Þar ætlar borgarfulltrúi Viðreisnar að ræða málið við fjármálaráðherra Viðreisnar. Dettur einhverjum í hug að það verði grundvallarbreyting á Borgarlínuverkefninu?“ segir hann. Hann telur að Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt auðvelt með að mynda meirihluta með Miðflokknum ef raunverulegur vilji væri til að ráðast gegn Borgarlínu og þéttingarstefnu síðustu ára. Segir afsakanirnar veikar Sigmundur segir fyrirséð að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að skýra hvers vegna ekki var gengið til samstarfs við Miðflokkinn. Þær skýringar sem fram hafi komið standist illa skoðun. Það sem helst hefur verið nefnt til sögunnar er að fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Helgi Áss Grétarson, Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, hefðu gengið til liðs við Miðflokkinn eftir að hafa verið hafnað af borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda kosninganna. Ástæðan fyrir því hefur verið sögð að þau þrjú séu erfið í samstarfi, og það sé helsta ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn velji frekar Viðreisn en Miðflokkinn í meirihlutasamstarf. „Við vissum að ef þau ætluðu að fara þessa leið þyrftu þau að finna einhverjar afsakanir. Ef þetta er það besta sem þau fundu þá er það mjög léleg tilraun,“ segir Sigmundur sem bendir á að Marta og Kjartan séu ekki einu sinni varaborgarfulltrúar. Hann segir málin sem Miðflokkurinn lagði áherslu á í kosningabaráttunni hafa verið þau sömu og Sjálfstæðisflokkurinn nýtti til að sækja fylgi. Þess vegna sé erfitt að halda því fram að málefnaleg gjá hafi staðið í vegi fyrir samstarfi flokkanna. „Búið að semja um frið við Viðreisn“ Sigmundur segist hafa talið ljóst undir lok þingfundar í gærkvöldi hvert stefndi. Hann vísar til þess að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafi horfið af mælendaskrá í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður á Alþingi. „Við vissum hvað var að fara að gerast daginn eftir. Það var búið að semja um frið við Viðreisn og nú fær utanríkisráðherra ekki gagnrýni frá Sjálfstæðisflokknum,“ segir Sigmundur.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Sjá meira