Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Eiður Þór Árnason skrifar 4. júní 2026 23:26 Hilmar Gunnarsson er nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Vísir/Sigurjón Hilmar Gunnarsson hefur tekið við sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meirihluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Hilmar er oddviti Sjálfstæðismanna.
Hilmar fær 1.968.059 krónur í grunnlaun samkvæmt ráðningarsamningi og bætist við fast 360.352 króna álag vegna yfirvinnu og útlagður kostnaður vegna aksturs eigin bifreiðar í þágu starfsins upp á 187.500 krónur. Samanlagt fær Hilmar því 2.515.911 krónur á mánuði en innifalið í því er greiðsla fyrir störf hans sem bæjarfulltrúi. Kjör hans verða uppfærð í samræmi við launavísitölu Hagstofunnar tvisvar á ári og gerist það næst 1. júlí. Alls voru 13.772 íbúar skráðir í Mosfellsbæ í byrjun árs. Þriðji bæjarstjórinn á þessu ári Hilmar tekur við af Þóru M. Hjaltested sem var ráðin tímabundið í starf bæjarstjóra þann 1. apríl eftir að Regína Ástvaldsdóttir óskaði eftir lausn frá störfum. Regína skipaði sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík en hún var ráðin sem óflokksbundinn bæjarstjóri árið 2022. Hún náði ekki inn í borgarstjórn í nýafstöðnum kosningum. Þóra hefur starfað sem bæjarlögmaður Mosfellsbæjar og fór í leyfi frá því starfi á meðan hún gegndi tímabundið stöðu bæjarstjóra fram að kosningum. Fyrsti bæjarstjórnarfundur nýrrar bæjarstjórnar fór fram í gær. Gylfi Þór Þorsteinsson, oddviti Viðreisnar, er nýr forseti bæjarstjórnar og Jana Katrín Knútsdóttir formaður bæjarráðs en hún skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Gylfi er eini Fallinn meirihlutibæjarfulltrúi Viðreisnar en Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm kjörna. Gylfi Þór Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar, Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, og Jana Katrín Knútsdóttir, formaður bæjarráðs.Aðsend Fallinn meirihluti Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Viðreisn mynduðu meirihluta á síðasta kjörtímabili en hann féll í nýliðnum kosningum þegar Framsóknarflokkurinn missti tvo bæjarfulltrúa yfir til Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Greint hefur verið frá því að nýr bæjarstjóri Akureyrar sem kemur sömuleiðis úr röðum Sjálfstæðisflokksins muni fá rúmar 2,6 milljónir króna á mánuði. Líkt og í Mosfellsbæ tekur hún við af bæjarstjóra sem var ráðinn til starfsins. Vísir tók saman upplýsingar um kaup og kjör æðstu fulltrúa sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í febrúar.
Mosfellsbær Kjaramál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum manni í Mosfellsbæ og er stærstur flokka með fimm menn. Meirihlutinn er kolfallinn með aðeins fjóra menn. 17. maí 2026 03:20 Bæjarstjóri Mosfelssbæjar á lista Samfylkingar í Reykjavík Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. 26. febrúar 2026 19:21 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira
Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum manni í Mosfellsbæ og er stærstur flokka með fimm menn. Meirihlutinn er kolfallinn með aðeins fjóra menn. 17. maí 2026 03:20
Bæjarstjóri Mosfelssbæjar á lista Samfylkingar í Reykjavík Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. 26. febrúar 2026 19:21