Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Agnar Már Másson skrifar 15. júní 2026 11:23 „Það liggur inni og hefur legið í talsverðan tíma fundarbeiðni af minni hálfu gagnvart Bandaríkjaforseta,“ segir Kristrún. Samsett Mynd Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki orðið við beiðni Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um fund. Hún segir að frá því að kjörtímabil Trumps hófst hafi samskipti aukist við Bandaríkin innan stjórnsýslunnar. Hún vænir þingmann Sjálfstæðisflokksins um að gera samskipti milli ríkjanna tortryggileg.
Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma þingsins í morgun, þar sem Kristrún svaraði fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hagsmunagæslu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Seinast var greint frá þessari fundarbeiðni í október og enn stendur á svari. „Við hljótum að gera þá kröfu að ráðherrar okkar sinni þessari mikilvægu bandaþjóð okkar af fullum krafti og til jafns við kollega sína á Norðurlöndunum,“ sagði Diljá í fyrirspurnartíma þingsins og beindi svo þeirri spurningu að forsætisráðherra hvers vegna hún og aðrir íslenskur ráðherrar væru með „annan fótinn í Brussel“ en ekki í Bandaríkjunum. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Kristrún tók undir að hagsmunagæsla gagnvart Bandaríkjunum væri mikilvæg og sagði að íslensk stjórnvöld ættu í reglulegum samskiptum við Bandaríkin á öllum stigum stjórnkerfisins og nefndi þar „atvik í efnahagslögsögunni“ í upphafi árs og vísar væntanlega til þess þegar bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr eftir. Samtalið við Bandaríkin aldrei verið betra – í stjórnkerfinu „Það er satt best að segja að þrátt fyrir að það virðist vera að pólitíska samtalið milli Bandaríkjanna og Evrópu hafi breyst, þá hefur reyndar í stjórnkerfinu samtal við Bandaríkin á Íslandi aldrei verið betra. Það er mjög náið samtal og ég veit til að mynda fyrir víst að á fyrri kjörtímabili núverandi Bandaríkjaforseta hafi einmitt verið um að ræða einmitt þessi samskipti.“ Engu að síður verði að horfast í augu við það að það sé ekki endilega það sama að eiga samskipti á sviði stjórnkerfisins og á hinu pólitíska. „Það liggur inni og hefur legið í talsverðan tíma fundarbeiðni af minni hálfu gagnvart Bandaríkjaforseta,“ bætir Kristrún við Hún tekur fram að hún hafi hitt Donald Trump Bandaríkjaforseta í nokkur skipti og átt „ágæt samtöl við hann“ þó að það hafi ekki verið á formlegum tvíhliða fundum. „Þar hefur meðal annars komið fram að hann sé mjög meðvitaður um þetta sérstaka samband Bandaríkjanna við Ísland í tengslum við varnarsamninginn og hann sé enn þá í fullu gildi. Þetta fullyrti Bandaríkjaforseti við mig.“ Það liggi fyrir að samskipti við Bandaríkin séu til staðar. „Það er enginn að forðast þau.“ Ekki góður bragur á því „að tortryggja samskipti milli þessara landa“ Diljá spurði þá hvers vegna ráðherrann skæri sig alfarið út frá kollegum sínum á Norðurlöndunum þegar kæmi að samskiptum við Bandaríkin og einkum hvers vegna þessi ríkisstjórn hefði tekið „algera u-beygju“ í samskiptum við Bandaríkin og nefnir þar sameiginlega yfirlýsingu 22 bandalagsríkja vegna Írans að undirlagi Bandaríkjanna. „Öll Norðurlöndin skrifa þar undir nema Ísland. Hvernig stendur á þessu, virðulegi forseti? Er Ísland orðið utanveltu þegar kemur að samskiptum við Bandaríkin? Eða var það mat ríkisstjórnar hæstvirts forsætisráðherra að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þessari ógn? Samskipti við Brussel og áhugi á Evrópusambandinu taka augljóslega sinn toll, en við gerum þá kröfu að hagsmunagæslu sé sinnt gagnvart Bandaríkjunum,“ sagði Diljá. Kristrún svaraði að hún gæti ekki tekið undir málflutning Diljár. „Og ég verð að segja að mér finnst ekki góður bragur á því hjá þingmanninum að varpa rýrð eða tortryggja samskipti milli þessara landa,“ sagði hún. Það liggi fyrir að það séu skiptar skoðanir í þingsal þegar kemur að því að kanna aðildarviðræður við Evrópusambandið. „En það er ekki það sama og við eigum að vekja tortryggni eða jafnvel hræðslu úti í samfélaginu um að við eigum ekki góð samskipti við Bandaríkin.“ Vissulega hafi samskipti víða breyst en það sé ekki rétt að fundir eða samskipti hafi verið af allt öðrum toga en milli annarra landa. Það sé allur gangur á því. „Við höfum verið mjög jákvæð þegar kemur að því að sækja fundi [með bandarískum stjórnvöldum]. Það hefur verið mikið um að vera í alþjóðamálum,“ sagði hún og nefndi sérstaklega að ályktun sem Diljá vísaði til hafi borist til íslenskra stjórnvalda seint á föstudagskvöldi og því hafi þau aðeins haft örfáa klukkutíma til að bregðast við. Síðar hafi komið önnur ályktun þar sem tekið væri undir það sama og undir það hafi íslenska ríkisstjórnin ritað. „Þannig að við höfum alveg sýnt lit þegar kemur að aðgerðum í Hormússundinu og þau vita alveg í Bandaríkjunum hvar við stöndum hvað það varðar.“
Donald Trump Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Bandaríkin Utanríkismál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira