Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Agnar Már Másson skrifar 17. júní 2026 13:02 Nú má flagga allan sólarhringin frá maí til 15. ágúst. Vísir/Vilhelm/Aðsend Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur beðið allar stofnanir bæjarins um að flagga íslenska þjóðfánanum allan sólarhringinn í sumar, sem má nú samkvæmt nýjum fánalögum. Auk þess hefur fáninn verið dreginn að húni við allar innkomuleiðir bæjarins. „
Það var eitt af mínum verkefnum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að leiða þverpólitíska sátt um breytingar á fánalögum svo að það megi fána allan sólarhringinn,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í samtali við Vísi en hann hætti nýlega sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins eftir að hann tók við sem bæjarstjóri í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Lagabreytingarnar sem Vilhjálmur vísar til gera landsmönnum heimilt samkvæmt fánalögum að hafa íslenska fánann uppi allan sólarhringinn á tímabilinu 1. maí til 15. ágúst. Það þarf því ekki að taka hann niður á nóttunni. „Og við höfum nýtt þetta vel, nýjasti meirihluti í Reykjanesbæ, að flagga fánanum við ráðhús bæjarins,“ segir Vilhjálmur í samtali við Vísi. „Og nú í aðdraganda 17. júní óskuðum við eftir því að fánanum yrði flaggað við allar stofnanir fyrir 17. júní og hann yrði látinn standa uppi til 15. ágúst,“ segir hann. Þetta eigi við um allar stofnanir bæjarins, að því gefnu að við þær standi flaggstöng. Þar að auki hafi fáninn verið dreginn að húni við allar innkomuleiðir bæjarins og mun þá einnig blasa við öllum þeim sem eiga leið fram hjá bænum. „Við viljum nýta íslenska fánann, sem er sameiningartákn íslensku þjóðarinnar, og svona stoltið okkar til þess að bæta aðeins bæjarbraginn og ásýnd á bænum.“
Reykjanesbær Íslenski fáninn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Selenskí kíkti á klakann Erlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira