„Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. júní 2026 11:53 Katrín Oddsdóttir er lögmaður Hólmsteins Harðarsonar. Lögmaður manns sem braust inn í hvalveiðibát í gær og siglt var á brott með frá Reykjavík og til Hvalfjarðar segir eitt lögbrot ekki réttlæta annað, ljóst sé að lífi hans hafi verið stefnt í hættu og segir hún atvikið sem og viðbrögð athugasemdakerfa birtingarmynd aukinnar hörku í umræðunni á Íslandi. Ekki er ljóst hvort hann eða Hvalur muni leita réttar síns á þessum tímapunkti.
Það var laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi sem Hvalur 9 lagði að bryggju í Hvalfirði, rúmum þremur og hálfum tímum eftir að skipið lagði af stað úr Reykjavíkurhöfn með mótmælandann Hólmstein Harðarson um borð en hann hafði komið sér fyrir í tunnu skipsins fyrr um daginn. Þegar skipið bar að bryggju í Hvalfirði mátti sjá skipverja hanga við tunnuna, einn heldur utan um Hólmstein. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi fór varðstjóri á vegum embættisins upp í körfubíl og til Hólmsteins og tók um klukkutíma að sannfæra hann um að koma niður úr tunnunni í Hvalfirði. Hann var ekki handtekinn, heldur var honum þaðan skutlað á Kjalarnes þar sem Hvalavinir tóku við honum og skutluðu honum heim. Lögreglan segir að ekki hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu, hvorki á Vesturlandi né í Reykjavík, því standi ekki til að rannsaka málið sérstaklega. Ekki hefur náðst í Kristján Loftsson framkvæmdastjóra Hvals vegna málsins. Katrín Oddsdóttir lögmaður Hólmsteins segist hugsi vegna málsins. „Vegna þess að það sem gerist í gær er það að það náttúrulega á sér stað ákveðið lögbrot sem allir eru meðvitaðir um, þegar þessi ungi maður klifrar þarna upp í þetta mastur og við höfum séð þetta áður og við vitum alveg nákvæmlega hvernig dómstólar líta á þessa gjörð, þetta er bara talið lögbrot. En svo gerist það í kjölfarið að framkvæmt er annars konar lögbrot, að ég tel, það er að segja að hann er einhvern veginn án þess að hann sé fullkomlega meðvitaður um það skráður sem farþegi og það er bara siglt af stað með hann,“ segir Katrín. „Og þetta virðist vera einhverskonar svona gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð sem ég held að fólk hafi ekki hugsað alveg til enda, að láta hann dúsa þarna og svo sér maður í athugasemdakerfum mjög mikla heift sem hlaupin er skyndilega í íslensku þjóðina, sem er leiðinlegt að sjá þar sem það er bara að hann hafi nú bara átt þetta skilið og að þetta sé bara hið besta mál og hvort eigi ekki bara að henda honum fyrir borð nánast. Þessi athugasemdakerfi voru hræðileg.“ Ljóst sé að Hólmsteini hafi verið ótrúlega kalt, hann hafi ekki verið vel búinn. Katrín segir á ferðinni ungan mann sem hafi ekki séð aðra leið en þessa til þess að mótmæla hvalveiðum. „Og svo þegar þeir sigla af stað þá verður honum bara mjög, mjög kalt. Þannig að hans líf og heilsa er sett í hættu til þess að svona einhvern veginn sanna fyrir honum hvað? Að hann eigi ekki að vera að mótmæla einhverju sem við vitum öll að eru veiðar sem standast ekki lög um velferð dýra og svo framvegis. Þannig að mér finnst þarna vera búið að snúa við bara öllu því sem heitir réttlæti í einum vettvangi. Það var alveg skýrt að hann gaf ekki leyfi fyrir því að vera skráður sem farþegi, hann vildi ekki að það yrði lagt af stað með hann.“ Ekki sé hægt að jafna út eitt lögbrot með því að grípa til annars lögbrots og setja líf og heilsu manneskju í hættu sem reyni að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til tjáningar. Hún segir undarlegt að lögregla hafi ekki verið kölluð til strax. „Hvað ætlaði Hvalur hf. að gera ef þessi maður myndi detta niður á miðri leið einhvers staðar milli Reykjavíkur og Hvalfjarðar? Hvernig ætluðu þau að hjálpa honum ef hann hefði byrjað að klifra þarna í mastrið, af stað án þess að vera öruggur? Það er tekin áhætta með líf hans og limi án þess það viti nokkur hvort hann sé að segja rétt deili á sér, hvort það sé í lagi með hann andlega eða líkamlega eða neitt og í ljós kemur að þegar siglt er af stað þá er þetta bara áhættuaðgerð fyrir hans líkamlegu heilsu, enda er einhver áhafnarmeðlimur kominn þarna upp til að reyna að halda á honum hita af því að hann er bara settur í alvarlegar aðstæður og þess vegna þurftu þeir að sigla svona hægt. Það að lögreglan sé ekki kölluð til finnst mér vera vítavert.“ Hún hafi sjálft hringt í lögreglu, sem Katrín segir hafa staðið sig vel á vettvangi og í framkomu við Hólmstein. Ljóst sé að gera hefði þurft hlutina öðruvísi í gær. „En þegar manneskja er í svona aðstæðum, þá þarf að koma fólk sem kann vel til verka og hjálpa henni niður. Það þýðir ekki bara að sigla af stað og vona það besta. Og þetta er einhvers konar birtingarmynd af ákveðinni hörku sem er að færast inn í okkar samfélag, held ég, því miður. Og maður sér það á þessum athugasemdakerfum og annað að við þurfum svolítið að fara að anda út um nefið og hérna og reyna að ná einhverri eðlilegri jarðtengingu aftur í það hvað er eðlilegt að gera við fólk sem við erum ósammála og hvað ekki.“ Telurðu tilefni til þess að hann leiti réttar síns? „Ég hef ekki átt samtal við hann í slíka veru en ég veit alveg að þeim sem er kennt sjómennsku, þeim er ekki kennt að það sé eitthvað léttvægt að taka fólk og breyta því með farþega og sigla af stað, alveg óháð því hvað viðkomandi manneskja hefur gert, vegna þess að það eru ákveðnar öryggisreglur, það þarf að kynna fyrir fólki hvernig það á að bregðast við ef það verður einhver háski og annað. Þarna er bara verið að taka óþarfa áhættu, að því er virðist í einhverjum pirringi gagnvart því að einhver leyfi sér að sýna tjáningu gegn veiðum sem eru ólöglegar.“
Hvalveiðar Sjávarútvegur Hvalir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira