Innlent

Myndir úr Hval­firði: Lang­reyðar dregnar á land

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf.
Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf. Vísir/Vilhelm

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa á Íslandsmiðum síðan 2023, voru dregnar á land snemma í morgun í Hvalfirði. Tvær langreyðar hafi verið veiddar í nótt.

Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir úr Hvalfirði sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók í dag. 

Hvalur 9 hélt aftur úr höfn fljótlega eftir að langreyðunum var komið á land.Vísir/Vilhelm

Samkvæmt heimildum fréttastofu er Hvalur 8 væntanlegur inn að hvalstöðinni um klukkan 21 í kvöld með eina langreyði. Hvalurinn veiddist síðdegis í gær vestur af landinu um 190 sjómílur frá landi. Hvalur 9 sigldi aftur til veiða í morgun eftir að hafa landað fyrstu tveimur langreyðunum.

Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem veiðunum er mótmælt. Samtökin segja veiðarnar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“. Hvalveiðar hafi ekki verið stundaðar í tvö ár og enn séu birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður sé fyrir.

Tvær langreyðar voru veiddar í nótt.Vísir/Vilhelm
Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum í tvö ár.Vísir/Vilhelm

Í kvöldfréttum á Sýn í gær var rætt við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, sem sagði upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi.

Bæði hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða á föstudagskvöld.Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

„Dýravernd er ekki öfgaskoðanir“

Formaður Dýraverndarsamtaka Íslands vill að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar með því að afnema undanþágu Hvals hf. til að verka matvæli undir berum himni. Dýravernd séu ekki öfgaskoðanir og stöðva beri starfsemi sem feli í sér dýraníð.

Langreyðarnar komnar á land

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, komu á land í Hvalfirði snemma í morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×