Ógleymanlegt kvöld í alla staði Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 27. júní 2026 20:00 Aaron Angelo Labajo Soriano fagnaði útskrift sinni með miklum stæl. Project Neil „Þegar ég lít til baka núna er ég ótrúlega þakklátur fyrir sem hefur gerst,“ segir leikarinn og fyrirsætan Aaron Angelo Labajo Soriano sem hélt glæsilega útskriftarveislu í Skeifunni og fagnaði tímamótunum sannarlega með pompi og prakt. Aaron er mikill tískuunnandi og fór auðvitað alla leið í klæðaburði.
Blaðamaður ræddi við Aaron um þetta kvöld en markmið hans var að skapa lúxusheim fyrir gesti sína. Veislan var haldin í Santé Reykjavík í Skeifunni og þemað var „Allt eða ekkert“, sem er mottó-ið hans Aarons. „Ég vildi hafa Casino Royale þema og gestir fóru alla leið. Þetta var algjörlega ógleymanlegt kvöld og lúxusinn auðvitað í fyrirrúmi. Fólkið hjá Sante sá um að okkur liði eins og stórstjörnum, segir Aaron kíminn. Í upphafi kvölds fengu gestir freyðivín og kavíar sem gaf strax tóninn fyrir kvöldið og glimmer og glæsileiki tóku sömuleiðis vel á móti þeim. DJ Mellí hélt uppi rosalegri stemningu allt kvöldið og það var svo verðmætt að eiga þessa stórkostlegu stund með mínum nánustu. Gleði og jákvæðni var algjörlega í fyrirrúmi,“ bætir Aaron brosandi við. Það vantaði ekki stuðið.Project Neil Klæðaburður hans endurspeglaði þema kvöldsins. „Ég tók á móti gestum í vínrauðum flauelsjakka við ögrandi gegnsæjan samfesting og hnéhá stígvél. Ég opnaði svo Dom Pérignon kampavínsflösku með sverði og það ætlaði allt að tryllast. Síðar um kvöldið skipti ég yfir í glitrandi blá og hvít föt og fór í þeim á skemmtistaðinn Auto á kampavíns-flöskuborð,“ segir þessi lúxuspési. Kvöldið var þýðingarmikið fyrir Aaron en hann flutti til Íslands alla leið frá Filippseyjum í heimsfaraldrinum. „Síðustu ár hafa verið stútfull af áskorunum og ég er stoltur af sjálfum mér fyrir seigluna. Ég hef sannarlega meiri trú á sjálfum mér núna en ég hafði fyrir nokkrum árum. Þegar ég flutti gat ég engan veginn ímyndað mér hvað framtíðin bæri í skauti sér. Þegar ég lít til baka núna er ég ótrúlega þakklátur fyrir allt sem hefur gerst. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir foreldra mína, Marlene Angeline Soriano og Bonifacio Jr. Soriano, en þau hafa alltaf haft trú á sér. Þar sem ég er yngsta barnið þeirra áttu þau sérstaklega erfitt með að fylgjast með mér flytja hinum meginn á hnöttinn en í dag eru þau mjög stolt af mér,“ segir Aaron að lokum. Hér má sjá myndir frá herlegheitunum: Gestir klappa fyrir gestgjafanum.Project Neil Símar á loft.Project Neil Nóg af mat og fljótandi veitingum!Project Neil Kinga Maria, Elsa Linh, Sara Minh og Wiktoria Klaudia glæsilegar. Project Neil Viktoría Rún, Hafdís Einarsdóttir og Melkorka Hafsteinsdóttir. Project Neil Galað tekið alla leið í klæðnaði og stemningu.Project Neil Abegail Anne Soriano og Aaron.Project Neil Gunnar Skírnir, Aaron og Bassi Maraj í stuði.Project Neil Aaron umvafinn glæsilegum vinkonum.Project Neil Flottir félagar.Project Neil Aaron og Kristján Jóhannesson.Project Neil Aaron og Þórarinn Logi.Project Neil Eva Katrín, Hrafnhildur Haraldsdottir, Lilja Sif Pétursdóttir, Gunnar Skírnir og Tamara Akinyi. Project Neil Ágúst Logi Svavarsson, Hildur Kolfinna og Aaron. Project Neil Kurt Hung, Abegail Anne Soriano, Bryan Ace og Mary Yanne Broce. Project Neil Eva Katrín, Natalia Nótt, Aaron Soriano, Ása María og Hera Marín. Project Neil Glamúr gestir. Project Neil Ólafur Jóhann og Aaron flottir.Project Neil Aaron og Bassi Maraj í fíling.Project Neil Atli Baldur Atlassen, Aaron Soriano og Vlad Krasovsky umkringdir góðum konum. Project Neil Gestir dönsuðu fram á nótt.Project Neil Pauline Guzman, Ella Siladan, Nikki Nocon, Athena Antioquia, Aaron Soriano og fleiri góðir. Project Neil Alexander Magnússon og Elísa Sóldís í kossaflensi. Project Neil Hildur Eva, Þórunn Fríða, Elma Bakiqi og Aaron.Project Neil Mikið fjör!Project Neil Þórainn Logi, Ísak Máni og Arnar Smári.Project Neil Axel Árni, Óskar Herbertsson, Kristin Lovísa og Lena Rut.Project Neil
Samkvæmislífið Tímamót Tíska og hönnun Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Sjá meira