„Það koma bara færri“ Bjarki Sigurðsson skrifar 28. júní 2026 19:00 Örlygur Hnefill starfar í ferðaþjónustu á Húsavík. Vísir/Vilhelm Komum skemmtiferðaskipa til smærri bæja á Norðausturlandi hefur snarfækkað eftir álagningu gistináttaskatts. Ferðaþjónustuaðili segir dæmi um að bæir fái nú engar heimsóknir frá skipunum. Ávinningur ríkissjóðs sé lítill sem enginn.
Frá og með byrjun árs 2025 hafa erlendir ferðamenn sem koma hingað með skemmtiferðaskipum greitt 2500 krónur fyrir hverja nótt í innviðagjald. Ferðaþjónustuaðilar hér á landi fengu lítinn fyrirvara sem fór illa í skipafélögin úti í heimi. Örlygur Hnefill Örlygsson starfar í ferðaþjónustu á Húsavík og segir þetta hafa haft mest áhrif á smærri bæi landsins. „Staðan er náttúrulega sú að við erum að missa hátt í helming af þeim skipum sem við höfum verið að fá undanfarin ár. Við byrjuðum í miklu átaki fyrir þremur árum síðan að markaðssetja okkur fyrir skemmtiferðaskipum, bæði hér á Húsavík en einnig á Raufarhöfn,“ segir Örlygur Hnefill í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Við erum búin að auka á hverju ári þangað til núna þegar markaðurinn bara brest við breytingum sem eru að eiga sér stað á umhverfi skipanna. Við finnum það rosalega vel hér og þetta er að bitna á söfnu og veitinga- og afþreyingarmöguleikum hér á svæðinu. Það koma bara færri.“ Áhrifin birtist fyrr í litlu höfnunum Til að mynda hafi fimm skip heimsótt Raufarhöfn í fyrra en engin í ár. „Það sem gerist er að minni skipin, þau eru sveigjanlegri með að afbóka sig og þegar svona aðstæður breytast þá eru þetta frekar þau sem bregðast hraðar við heldur en þessi stóru skip sem eru bókuð lengra fram í tímann. Það þýðir að svona áhrif birtast fyrst hjá okkur í litlu höfnunum,“ segir Örlygur Hnefill. Hann telur að ríkissjóður tapi svo miklum gjaldeyristekjum á fækkun ferðamanna að innviðagjaldið borgi sig ekki. „Ef þetta er gert á einhverjum eðlilegum tíma og sagt að það eigi að bæta þessu gjaldi við eftir þrjú ár, þá getur greinin unnið með það. Það sem vantar alltaf hjá stjórnvöldum er einhver fyrirsjáanleiki í skattlagningu og þetta eru bara breytingar sem eru ákveðnar á fjárlögum og dottnar inn nokkrum mánuðum seinna. Það er ekki að ganga.“ Opna nýtt safn Hann lítur þó björtum augum á húsvíska sumarið. „Við erum að opna í næstu viku safn sem við vorum með á árum áður sem heitir Könnunarsafnið, The Exploration Museum, og þetta safn segir sögu af víkingum sem komu hér til Íslands fyrstir og fólki sem var hér á okkar slóðum að undirbúa sig fyrir ferðir á Norðurpólinn.“ „Svo er auðvitað stærsta sýningin um geimfarana sem æfðu hér fyrir tunglferðirnar,“ segir Húsvíkingurinn Örlygur Hnefill Örlygsson.
Norðurþing Ferðaþjónusta Skemmtiferðaskip á Íslandi Söfn Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Sjá meira