Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. júní 2026 11:15 Bjarni Már Magnússon lögmaður er sérfræðingur í íslenskum hafrétti. Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir.
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgir enn skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir innan íslenskrar lögsögu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er skipið enn í biðstöðu djúpt úti á Faxaflóa á móti Hvalfirði. Hvalur 9 sneri til lands í gær með tvær langreyðar án þess að Bandero skærist í leikinn og er reiknað með að Hvalur 8 komi til lands um hádegisleytið með eitt dýr. Samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt. Hótanir héldu áfram í nótt á Instagram-síðu samtakanna þar sem boðuð var atlaga gegn olíufélaginu sem þjónustar Hval. Þau segja að önnur langreyðurin sem var veidd í gær hafi verið kálffull. Kristján Loftsson forstjóri Hvals sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gefi lítið fyrir alla aðgerðarsinna, bæði innanlands og erlendis. Formaður Verkalýðsfélags Akraness kvaðst undrandi á því í gær að Landhelgisgæslan skyldi ekki vísa skipinu út fyrir íslenska lögsögu eftir að hafa slökkt á staðsetningarbúnaði sínum og haft í hótunum. Bandero hefur til þessa ekki siglt innan tólf mílna landhelgi Íslands. Bjarni Már Magnússon, lögmaður og sérfræðingur í hafrétti, segir hótanir þurfa að ná ákveðnu stigi svo mögulegt sé að skipta sér af för Bandero innan lögsögu Íslands. „Ef skip siglir löglega um efnahagslögsöguna og hefur ekki brotið íslensk lög, þá er almennt ekki heimilt að stöðva það eingöngu vegna gruns um að það kunni síðar að grípa til mótmæla eða einhverra aðgerða,“ segir Bjarni Már. „En hins vegar þá getur þessi staða breyst ef skip byrjar að trufla lögmæta atvinnustarfsemi og þá erum við að tala um að það reyni til dæmis að sigla vísvitandi fyrir hvalveiðiskip eða stofna öryggi skipa í hættu.“ Ef svo ber undir geti Landhelgisgæslan stöðvað för skipsins eða farið um borð og tekið stjórn skipsins. „Það sem ég reikna með að Landhelgisgæslan sé að skoða núna er að þetta þurfa að vera einhvers konar hótanir og svo þarf að vera eitthvað sem bendir til þess að það verði staðið við þær.“ Landhelgi Íslands afmarkast af línu sem er alls staðar12 sjómílur frá grunnlínu sem dregin er á milli 38 punkta við strendur Íslands. Efnahagslögsaga Íslands er svæði utan landhelgi sem afmarkast af línu sem alls staðar er 200 sjómílur frá grunnlínum landhelginnarHiminnoghaf.is. En hún gæti beitt sér öðruvísi innan landhelginnar sem eru þessar 12 sjómílur, það þyrfti minna til að vísa þeim þaðan út? „Það gæti verið eitthvað sem myndi þurfa skoðunarm, því þar eru valdheimildarnar meiri.“
Hvalveiðar Dýr Landhelgisgæslan Lögmennska Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira