Samstarf

Á bak við stórar fram­kvæmdir eru stórar vélar

Armar Jarðvélar
„Við leigjum út stærri jarðvinnuvélar eins og gröfur, búkollur, jarðýtur og valtara og leggjum áherslu á að geta þjónustað viðskiptavini okkar með nánast öllu sem til þarf við jarðvinnu,“ segir Þórir Kristmundsson, verkstjóri hjá Örmum Jarðvélum.
„Við leigjum út stærri jarðvinnuvélar eins og gröfur, búkollur, jarðýtur og valtara og leggjum áherslu á að geta þjónustað viðskiptavini okkar með nánast öllu sem til þarf við jarðvinnu,“ segir Þórir Kristmundsson, verkstjóri hjá Örmum Jarðvélum. Mynd/Hulda Margrét.

Þegar stórar framkvæmdir hefjast skiptir miklu máli að réttar vélar séu til staðar á réttum tíma. Það er einmitt kjarninn í starfsemi Arma Jarðvéla sem sérhæfa sig í útleigu á jarðvinnuvélum fyrir verkefni af öllum stærðum. Að sögn Þóris Kristmundssonar, verkstjóra hjá Örmum Jarðvélum, er markmiðið einfalt: að viðskiptavinir fái áreiðanlega þjónustu og þann búnað sem þeir þurfa, hvar sem er á landinu.

„Við leigjum út stærri jarðvinnuvélar eins og gröfur, búkollur, jarðýtur og valtara og leggjum áherslu á að geta þjónustað viðskiptavini okkar með nánast öllu sem til þarf við jarðvinnu. Helstu viðskiptavinir okkar eru stærri jarðvinnuverktakar sem vinna að umfangsmiklum verkefnum víða um land,“ segir Þórir.

Armar Jarðvélar bjóða upp á fjölbreytt úrval hjóla- og beltagrafa. Hjólagröfurnar henta sérstaklega vel í smærri og meðalstór verkefni, svo sem við lagnavinnu og frágang lóða, en beltagröfurnar eru öflugri og ætlaðar stærri framkvæmdum. Auk þess eru til fjölmargar skóflur og hægt er að fá fleyga á flestar gerðir beltagrafa.

Endurnýja vélaflotann reglulega

Þótt megináherslan sé á útleigu kemur einnig fyrir að vélar séu seldar. „Við kaupum yfirleitt nýjar vélar og þá aðallega frá CAT. Markmið okkar er að vélaflotinn sé ekki eldri en fjögurra til fimm ára. Þegar vélarnar ná þeim aldri eru þær seldar og hafa hingað til allar verið seldar hér á Íslandi. Þeir sem hafa áhuga geta alltaf haft samband og athugað hvort tiltekin vél sé fáanleg til kaups.“

Auk grafa eru í boði öflugar vélar á borð við Caterpillar 730 búkollur sem eru hannaðar fyrir mikla efnisflutninga við erfiðar aðstæður, CAT D6K jarðýtur sem margir verktakar þekkja vel, CAT hjólaskóflur og CAT valtara með þjöppumæli sem getur skráð og prentað upplýsingar um þjöppunina.

Armar jarðvélar.Mynd/Ármann Jón Garðarsson.

Smærri vélar sem létta vinnuna

Þótt Armar Jarðvélar séu þekktastir fyrir stærri vinnuvélar er einnig boðið upp á fjölbreytt úrval smærri véla. „Við erum með lager af minni jarðvinnuvélum, meðal annars litlum gröfum, vélhjólbörum og liðléttingum. Þetta eru mjög vinsælar vélar sem geta létt margt handtakið og reynast vel í fjölbreyttum verkefnum.“

Þá geta viðskiptavinir einnig leitað til systurfélagsins Armar Vinnulyfta eftir enn meira úrvali smærri leiguvéla, svo sem þjöppum og beltahjólbörum.

Frá kartöflugarði til stórframkvæmda

Aðspurður um fjölbreytileika verkefna sem vélarnar sinna segir Þórir að fátt komi á óvart. „Verkefnin geta verið allt frá því að hreinsa til í kartöflugarði og upp í að byggja stórar virkjanir eða sinna þungum vegaframkvæmdum. Þetta sýnir vel hversu fjölbreytt notkunarsvið vélanna er.“

Þessi breidd kallar jafnframt á fjölbreytt úrval véla og sveigjanlega þjónustu, enda geta þarfir viðskiptavina verið mjög ólíkar frá einu verkefni til annars.

Þjónustan skiptir sköpum

Samkeppnin á markaðnum er hörð, en Þórir telur að ákveðnir þættir geri Arma Jarðvélar sérstaka. „Það sem aðgreinir okkur helst er vöruúrvalið og þjónustan. Við teljum okkur vera með mesta vöruúrvalið og leggjum mikla áherslu á góða þjónustu.“

Hann bendir sérstaklega á að fyrirtækið sé með fullbúna verkstæðisbíla sem geti sinnt viðhaldi og viðgerðum beint á verkstað. „Við getum mætt á verkstaði hvar sem er á landinu til að þjónusta vélarnar okkar. Það skiptir miklu máli fyrir viðskiptavinina að lágmarka tafir þegar eitthvað kemur upp á.“

Horfa stöðugt fram á við

Þrátt fyrir sterka stöðu segir Þórir að fyrirtækið sé sífellt að leita leiða til að þróast áfram. „Við viljum alltaf gera betur. Við erum stöðugt að skoða nýjar vörur sem geta aukið afköst og bætt vinnuumhverfi viðskiptavina okkar. Jafnframt leggjum við mikla áherslu á að tryggja áreiðanlegt framboð svo viðskiptavinir geti fengið þær vélar sem þeir þurfa með sem stystum fyrirvara.“

Að hans sögn snýst framtíðarsýnin ekki aðeins um að fjölga vélum heldur fyrst og fremst um að efla þjónustuna enn frekar. „Markmiðið er að vera traustur samstarfsaðili sem getur brugðist hratt við þegar stór og krefjandi verkefni kalla á öflug tæki og góða þjónustu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×