Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi Kristján Már Unnarsson skrifar 30. júní 2026 20:20 Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs. Tvítugsafmæli þess er fagnað í dag. Egill Aðalsteinsson Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Hala í Suðursveit. Það vakti nokkra umræðu síðastliðið haust þegar fréttir birtust af því að Halldór Laxness væri mikið til hættur að vera lesinn í framhaldsskólum landsins. En hvað með Þórberg? Er hann að verða gleymdur nýjum kynslóðum Íslendinga? Þórbergssetrið reis í byggingu sem áður var fjárhús en við gerð safnsins var byggt við báða gaflana. Sjá má bækur Þórbergs utan á norðurveggnum. Opnunarhátíðin var árið 2006 á þessum degi, 30. júní. Jafnframt fylgdi veitingahús. Þórbergssetrið að Hala í Suðursveit. Bækur Þórbergs prýða vegginn.Egill Aðalsteinsson „Á þeim tíma var náttúrulega mjög lítil þjónusta hér á þessu svæði. Og við sáum strax samlegðaráhrif í því að vera með veitingasölu og safn. Og það er auðvitað búið að halda þessari hugmynd alveg á floti,“ segir Þorbjörg Arnórsdóttir, sem stýrt hefur Þórbergssetrinu frá upphafi. Á safninu er farið í gegnum æviskeið Þórbergs með ljósmyndum og kvikmyndum, en einnig með líkönum af húsakynnum sem tengdust ferli hans. Þar sýnir Þorbjörg okkur líkan af Bergshúsi við Skólavörðustíg, sem Þórbergur bjó í um tíma og gerði frægt með skrifum sínum, en einnig af heimili hans við Hringbraut. Þorbjörg sýnir heimili Þórbergs, „Hringbraut á Hala“.Egill Aðalsteinsson „Og þetta er sem sagt íbúðin, sem þau bjuggu lengst í, vestur í bæ. Og margir sem kveikja á þessu og hittu hann í Vesturbænum á þessum tíma og muna eftir þessum svölum og svo framvegis. Íbúðin náttúrulega ennþá óbreytt.“ Fyrir innan eru stofan og skrifstofan. „Svo er þetta skrifborð Þórbergs og bókahillurnar og bækur úr bókasafni Þórbergs.“ Þórbergur Þórðarson rithöfundur fæddist á Hala í Suðursveit árið 1888. Hann lést í Reykjavík árið 1974, 86 ára gamall.Þórbergssetur Þórbergur Þórðarson var fæddur árið 1888 og lést árið 1974. En er hann að gleymast? „Nei, nú erum við bara svolítið bjartsýn hérna í Þórbergsklíkunni, eins og við erum stundum kölluð. Okkur finnst vera mikill straumur í þá átt hjá ungu fólki að lesa Þórberg og við erum að fá alltaf fleiri og fleiri vísbendingar um það. Ég held að verk hans séu ótrúlega lifandi,“ segir Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Bókmenntir Sveitarfélagið Hornafjörður Söfn Menning Íslensk tunga Tengdar fréttir Rýndi í kynjamyndir klettanna í Suðursveit Þórbergur Þórðarson var upphafsmaður skáldævisögunnar samkvæmt kenningum Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntafræðings. Ég skapa þess vegna er ég – nefnist ný bók hennar um verk Þórbergs. 22. desember 2015 10:15 Vill að Hringbrautin verði Þórbergsstræti "Þannig er mál með vexti að ég er með bón til þín að handan," segir í bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra frá manni sem kveðst vera "skyggnigáfumaður" og leggur til að nafni Hringbrautar vestan Melatorgs verði breytt í Þórbergsstræti. 22. september 2011 08:00 Þórbergur sá komu tölvupóstsins fyrir Nýtt leikverk um hugarheim, ritsnilld og ástir Þórbergs Þórðarsonar verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld af leikhópnum Edda Productions. Friðrik Friðriksson leikari er í hlutverki meistarans. 23. febrúar 2017 10:30 Þórbergur og Laxness í ruslinu Hallgrími Helgasyni rithöfundi brá í brún þegar hann opnaði pappírsgám í endurvinnslustöð Sorpu í Elliðavogi. Við blöstu bækur en ekki hvaða bækur sem er. Þar var að finna Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. Fjölmörgum blöskrar að sjá slíkt stórvirki á leið í tætarann á meðan aðrir benda á að um óumflýjanleg örlög bóka sé að ræða. 29. mars 2026 14:34 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Rýndi í kynjamyndir klettanna í Suðursveit Þórbergur Þórðarson var upphafsmaður skáldævisögunnar samkvæmt kenningum Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntafræðings. Ég skapa þess vegna er ég – nefnist ný bók hennar um verk Þórbergs. 22. desember 2015 10:15
Vill að Hringbrautin verði Þórbergsstræti "Þannig er mál með vexti að ég er með bón til þín að handan," segir í bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra frá manni sem kveðst vera "skyggnigáfumaður" og leggur til að nafni Hringbrautar vestan Melatorgs verði breytt í Þórbergsstræti. 22. september 2011 08:00
Þórbergur sá komu tölvupóstsins fyrir Nýtt leikverk um hugarheim, ritsnilld og ástir Þórbergs Þórðarsonar verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld af leikhópnum Edda Productions. Friðrik Friðriksson leikari er í hlutverki meistarans. 23. febrúar 2017 10:30
Þórbergur og Laxness í ruslinu Hallgrími Helgasyni rithöfundi brá í brún þegar hann opnaði pappírsgám í endurvinnslustöð Sorpu í Elliðavogi. Við blöstu bækur en ekki hvaða bækur sem er. Þar var að finna Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. Fjölmörgum blöskrar að sjá slíkt stórvirki á leið í tætarann á meðan aðrir benda á að um óumflýjanleg örlög bóka sé að ræða. 29. mars 2026 14:34