Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Agnar Már Másson skrifar 1. júlí 2026 14:18 Kristján hefur ekki orðið við beiðnum fréttastofu um viðtal í vikunni. Samkvæmt heimildum Vísis var Kristján Loftsson, forstjóri og eigandi Hvals, allt annað en ánægður með uppátæki ungs starfsmanns í hvalskurði þegar hann lék sér að limi hvalhræsins sem Hvalur 8 flutti til hafnar í gær.
Kristján hefur ekki orðið við beiðnum fréttastofu um viðtal í vikunni. Athygli vakti að þjóðsöngurinn var spilaður þegar hræið var gert tilbúið til hvalskurðar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var þjóðsöngurinn spilaður með vitund yfirmanna Hvals. Á þessum tíma höfðu aðgerðarsinnar, meðal annars frá Paul Watson-samtökunum, staðið vakt fyrir ofan hvalveiðistöðina til þess að fylgjast með skyttunum landa langreyði. Skipið Bandero er í lögsögu Íslands á vegum Paul Watson-samtakanna en þau hóta því að binda endi á hvalveiðar Íslendinga. Starfsmaðurinn otaði einnig limnum að tökumanni Vísis, sem var við tökur á svæðinu, en myndskeið af uppátækinu má sjá hér að neðan. Hvalur starfar samkvæmt veiðileyfi en atvinnuvegaráðherra brást illa við uppátæki starfsmannsins í viðtali í kvöldfréttum Sýnar í gær og sagði starfsmönnum félagsins að haga sér eins og fullorðnir. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Skaga, kvaðst í morgun afar ósáttur við ummæli atvinnuvegaráðherra og sagði hana eiga að standa með starfsfólki Hvals, en ekki gagnrýna það. Samkvæmt heimildum Vísis var þung stemmning meðal starfsfólks í hvalstöðinni í gær eftir uppátækið og alla umfjöllunina. Núna er bræla og stefnir í að engar hvalveiðar verði næstu daga. Matvælastofnun rannsakar nú hvers vegna langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals 22. júní. Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað.
Hvalveiðar Hvalir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira