Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Jakob Bjarnar skrifar 3. júlí 2026 11:34 Landliðskapparnir Aðalsteinn Jörgensen, Birkir Jón, Ómar Olgeirsson og Stefán Jóhannsson í morgun að reikna út skorið að lokinni viðureign. Matthías Imsland Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridge-sambandsins, er staddur á EM í bridds með landsliðinu. Þar ríkir mikil spenna fyrir síðustu umferðunum. Mótið fer fram í Riga í Lettlandi. „
Staðan í mótinu er æsispennandi og eins og hún er núna er ég bjartsýnn. Enn eru þó rúmir þrír keppnisdagar eftir af mótinu og okkar menn í opna flokknum þurfa að halda gríðarlega vel á spöðunum og öllum spilunum til að markmiðið náist,“ segir Matthías í stuttu samtali við Vísi. Nú þegar um 12 umferðir eru eftir af Evrópumótinu í Riga hyllir undir hið verðmæta 8. sæti – sætið sem skutlar okkur áfram í keppni um Bermúdaskálina. Ísland er sem stendur í 5.-7. sæti. Fyrir dyrum stendur svakalegur leikur við Norðmenn seinna í dag. Matthías fór yfir stöðuna áður en Íslendingarnir lögðu land undir fót og fór yfir stöðuna. Svo virðist sem hann ætli að standa við stóru orðin en hann leyfði sér að vera einstaklega bjartsýnn. Landsliðin voru búin að undirbúa sig afar vel og tók liðið í opna flokknum ótrautt stefnuna á eitt af átta sætum á mótinu. Matthías taldi að hann gæti fengið þessa bjartsýni í andlitið en nú virðist stefna í annað. „ Við erum þó enn bjartsýnni í dag en fyrir mótið á að okkur takist markmiðið að enda í Topp-Átta sem þýðir að við munum keppa á ný um Bermúdaskálina. Mórallinn í liðinu er líka góður og mjög gaman ef Ísland er á ný að marka sér spor sem ein fremsta briddsþjóð heims. Þar viljum við svo sannarlega vera.“
Bridge Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira