Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Sigurgeir Þorkelsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. júlí 2026 11:38 Hátíðargestir fylgjast hér með gangi hringekjunnar meðan allt lék í lyndi. Innsent Slys varð á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri í gær þegar ein fjögurra stoða hringekju gaf sig. Tækið er búið svokölluðum „bollum“ sem börnin setjast í og er síðan snúið í hringi.
Við það að ein stoðanna gaf sig keyrðist einn bollinn ofan í jörðina með þeim afleiðingum að tvö börn skullu nokkuð harkalega til. Í kjölfarið leituðu foreldrar annars barnsins með það á slysadeild. Samkvæmt Lögreglunni á Suðurlandi er barnið á leikskólaaldri. Lögreglunni barst tilkynning um slysið um þrjúleytið í gær. Tækið var stöðvað samstundis eftir að slysið hafði orðið. Meiðsli barnanna teljast ekki alvarleg. Öllum nærstöddum var brugðið við slysið að sögn Inga Þórs Jónssonar, skipuleggjanda hátíðarinnar. „Það voru krakkar í tækinu og þeim var brugðið. Strákunum tveimur sem sáu um tækið var líka illa brugðið.“ Tækið hafði nýlega hlotið skoðun frá Vinnueftirlitinu og hafði síðast verið í notkun vikuna á undan. Ingi Þór segir atvikið leiðinlegt og tækinu hafi að sjálfsögðu strax verið pakkað saman. Ingi lýsir atvikinu þannig að armarnir fjórir sem tækið hvíli á standi ofan á stöplum. Splitti sem haldið hafi örmunum stöðugum á stöplunum hafi brotnað þannig að armurinn hafi afskorðast á stöplinum sem olli því að högg kom á tækið með þeim afleiðingum að barnið skall á járnstöng. Bryggjuhátíðin fór fram á Stokkseyri í gær og var meðal annar boðið upp á sýningu frá Leikhópnum Lottu, trúbador og framkomu Kristmunds Axels, svo eitthvað sé nefnt.
Árborg Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira