Körfubolti

Vals­menn fá til sín stigakóng síðasta tíma­bils

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwayne Lautier-Ogunleye var langstigahæsti leikmaður Njarðvíkur á síðustu leiktíð.
Dwayne Lautier-Ogunleye var langstigahæsti leikmaður Njarðvíkur á síðustu leiktíð. Vísir/Anton

Dwayne Lautier-Ogunleye yfirgefur Njarðvíkinga en ekki íslensku Bónus-deildina. Hann hefur samið um að spila með Valsmönnum á næstu leiktíð.

Valsmenn tilkynna um komu Lautier-Ogunleye á miðlum sínum í dag en þessi öflugi leikmaður var stigahæsti leikmaður Bónus-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Lautier-Ogunleye var með 25,2 stig og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann tók 10,5 vítaskot að meðaltali í leik eða langmest af öllum leikmönnum deildarinnar.

Í úrslitakeppninni í vor duttu tölur hans niður í 18,8 stig og 2,9 stoðsendingar í leik.

Lautier-Ogunleye var að klára sitt þriðja tímabil með Njarðvík þar sem hann hefur hækkað meðalskor sitt á hverri leiktíð, úr 21,9 stigum í leik 2023-24, í 24,4 stig í leik 2024-25 og loks í 25,2 stig í leik á síðasta tímabili.

„Ég er virkilega spenntur fyrir því að ganga til liðs við Val. Félagið á sér ríka sögu sem ég hlakka til að verða hluti af og ég get ekki beðið eftir að hjálpa liðinu að færa Íslandsmeistaratitilinn aftur að Hlíðarenda,” sagði Lautier-Ogunleye á miðlum Vals.

Dwayne Lautier-Ogunleye, sem er 29 ára og 196 sentimetra bakvörður, er með franskt vegabréf og telur því sem Evrópumaður í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×