Innlent

Sú gula spókar sig á Suður­landi á morgun

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Skjámynd 2026-07-06 203514
Veðurstofa Íslands

Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðurlandi í fyrramálið klukkan sex og stendur fram til klukkan fjórtán síðdegis.

Spáð er austan hvassviðri og þrettán til átján metrum á sekúndu. 

Búast má mjög snörpum vindhviðum, allt að þrjátíu metrar á sekúndu, undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. 

Veðurstofan varar við að vera á ferð undir Eyjafjöllum og þá sérstaklega á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 

Þá verður einnig mikið hvassviðri á Reykjanesi.

Veður var skaplegt víða um land í dag og fór hiti hæst í 21,4 gráður á Húsavík síðdegis. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×