Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júlí 2026 21:10 Stigið frá borði sexunnar. Hún er svo gljáfægð að hægt er að spegla sig í málminum. Sigurjón Ólason Flugvél sem lék lykilhlutverk í millilandaflugi og alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga í byrjun sjöunda áratugarins lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Þetta er svokölluð sexa, eða Douglas DC 6B.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá lendinguna en bæði Loftleiðir og Flugfélag Íslands höfðu slíkar vélar í þjónustu sinni á árunum upp úr 1960 áður en þotuöldin gekk í garð. Þær lögðu grunninn að mestu velgengnisárum Loftleiða og gerðu Norður-Atlantshafsflug félagsins að raunhæfum valkosti í alþjóðlegri samkeppni á flugleiðum milli Evrópu og Ameríku. Sexan að snerta flugbrautina síðdegis.Sigurjón Ólason Fraktflugfélagið Iscargo gerði slíkar vélar út frá Reykjavíkurflugvelli á árunum 1972 til 1982. Jafnan þótti mikið ævintýri að sjá þær lenda og taka á loft. Þessi tiltekna flugvél er safngripur í eigu austurrísks félags um varðveislu sögufrægra flugvéla, The Flying Bulls. Verið er að ferja hana frá Salzburg yfir Norður-Atlantshaf til þátttöku í Oshkosh-flughátíðinni í Wisconsin í Bandaríkjunum. DC 6B-flugvélin við gamla Loftleiðahótelið. Fjöldi manns var við girðinguna að fylgjast með komu hennar.Sigurjón Ólason Mikill áhugi ríkti meðal íslenskra flugáhugamanna vegna komu vélarinnar. Pétur P. Johnson flugsögusérfræðingur telur að yfir þrír áratugir séu frá því vél þessarar gerðar lenti síðast á Reykjavíkurflugvelli. Hann telur að það hafi verið upp úr 1990 sem sexa var síðast í Reykjavík. Frá sexutímabilinu á Reykjavíkurflugvelli. Tvær Loftleiðasexur, DC 6B, og ein Flugfélagssexa fjær.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með flugtakinu má geta þess að stefnt er að því að flugvélin haldi för sinni áfram vestur um haf klukkan tíu í fyrramálið. Hér má sjá lendinguna:
Reykjavíkurflugvöllur Flug Icelandair Flugþjóðin Tengdar fréttir Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um fimmleytið síðdegis og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga. 7. júlí 2026 12:10 Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19 Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um fimmleytið síðdegis og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga. 7. júlí 2026 12:10
Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44