Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. júlí 2026 06:35 Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78 og Aldís Rut Gísladóttir, prestur við Grafarvogskirkju. vísir/ívar Skemmdarverk við Grafarvogskirkju setti svip sinn á útför þar í dag þar sem lögregluborðar og málningarfótspor blöstu við gestum. Formaður Samtakanna 78 segir um mikið áhyggjuefni að ræða.
Tveir menn unnu skemmdarverk á regnbogafána sem hefur prýtt tröppur við Grafarvogskirkju í þó nokkur ár í nótt. Aðilarnir máluðu þar flennistóran íslenskan fána í skjóli nætur. Fréttastofa bar handbragðið undir málarameistara sem taldi líklegt að verkið hafi tekið tvo menn um tvær klukkustundir og 30 lítra af málningu að klára verkið. Svo mikið magn af málningi kosti um 75 þúsund krónur að hans mati. Svo virðist sem tæki og tól sem voru notuð við verknaðin hafi verið skilin eftir á vettvangi. Svipmyndir frá vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan. Lögreglan rannsakar nú málið sem hatursglæp. „Við erum nýkomin með í hendurnar myndefni. Það er myndavél framan á kirkjunni þannig að við erum að skoða það og þetta snýst um að bera kennsl á einstaklingana sem standa að baki þessum gjörningi,“ sagði Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Það liggur við að mann langi að hringja í málningarbúðir og spyrja hvar voru keyptir 30 lítrar af málningu, helmingur blár, fjórðungur rauður og fjórðungur hvítur, er það aðferð sem þið munuð beita? „Ég veit ekki hvort við notum tölvupóst eða síma eða hvað en ég hvet líka almenning ef einhver hefur einhverjar upplýsingar að hafa samband við lögreglu.“ Útför fór fram í Grafarvogskirkju í dag þar sem lögregluborðar og óþornuð málning tók á móti gestum. „Það stóð svolítið mikið til hérna í morgun, lögreglan, fréttamenn og aðrir sem hafa lagt leið sína hingað. Við ásamt starfsfólkinu hérna og útfarastjóranum bara náðum vonandi að gera daginn þannig að þetta hafi ekki sett of mikið strik í reikninginn fyrir aðstandendur,“ sagði Aldís Rut Gísladóttir, prestur við Grafarvogskirkju sem sá um athöfnina. Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, segir hrikalegt að sjá svo illa farið með bæði íslenska fánann og fána hinsegin fólks. Hún kom fyrir íslenskum fána og regnbogafána við kirkjuna. „Þetta er náttúrulega mjög dapurlegt og líka mikið áhyggjuefni. Það er áhyggjuefni að sjá að þetta er skipulagt skemmdarverk og klárlega hugmyndafræðilegt. Síðustu ár höfum við séð aukningu á atburðum sem þessum. Ég vil trúa á það góða í fólki og ég vona að þetta skemmdarverk hristi svolítið upp í fólki.“
Hinsegin Þjóðkirkjan Íslenski fáninn Reykjavík Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira