„Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. júlí 2026 13:34 Gestir geta fengi að sigla með á morgun. Aðsend Tveir félagar úr afrekshópi Siglingafélags Reykjavíkur ætla að sigla í sólarhring um Fossvoginn um helgina. Þetta er liður í fjáröflun hópsins en gestum og gangandi verður boðið um borð.
Þeir Elías og Daníel munu sigla bátnum saman en þetta er í annað árið í röð sem þetta er gert. Báðir eru þeir í afrekshópi félagsins og í landsliðinu í siglingum. Tilgangurinn er að safna peningum fyrir stórmót sem framundan eru. „Á morgun erum við að sigla frá átta á morguninn til átta á morguninn á sunnudaginn, sem sagt tuttugu og fjórar klukkustundir. Við erum nokkrir að fara á Norðurlandameistaramót til dæmis og líklegast síðan Smáþjóðaleika og fleira á næsta ári,“ segir Elías Burgos. Siglt verður í hringi en sérstakar baujur munu marka brautina. Í fyrra fór báturinn hundrað og þrjátíu hringi á einum sólarhring. Þá munu aðrir félagsmenn skiptast á að sigla öðrum bát í skemmri tíma á svæðinu. Elías segir það nokkuð krefjandi að sigla svona lengi. „Ég myndi segja að það sé frekar erfitt að vera svona lengi úti á sjó. Það verður náttúrulega svolítið kalt og mikill vindur sem er spáð og síðan er þetta mjög gaman upp á það að vera bara með góðum félaga á bát og vera lengi að þessu, þannig að það er svona plúsinn og mínusinn er að vera lengi að þessu. Síðan náttúrulega tekur þetta á að vera að sigla þessum bátum svona lengi. Það eru alls konar hreyfingar sem maður þarf að gera sem taka virkilega á handleggsvöðvana, þannig að ég held að við verðum blautir og þreyttir þegar við komum aftur heim.“ Gestum boðið um borð Ákveðið var að siglingin færi fram í Fossvoginum til að fólk gæti komið og fylgst með. Þá verður gestum og gangandi boðið um borð frá klukkan tíu í fyrramálið til tvö. Elías segir það líka hafa verið gert í fyrra en mörgum hafi þótt gaman að prófa að sigla. „Það voru mjög margir krakkar sem voru mjög áhugasamir og komu og fengu að spyrja alls konar og svona. Það er líka annar mjög skemmtilegur hluti af þessu er bara að fá fullt af fólki sem maður hefur aldrei kynnst og að fá að kynna eitthvað svona skemmtilegt fyrir þeim.“
Siglingaíþróttir Reykjavík Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira