Strandamenn klárir í almyrkvann Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2026 15:35 Sigurður Marinó Þorvaldsson er í sérstökum stýrihópi vegna almyrkvans fyrir hönd Strandabyggðar og hann hefur þegar afhent Hrafnhildi Þorsteinsdóttur oddvita fyrstu gleraugun. Strandabyggð tekur þátt í sameiginlegri pöntun á sólmyrkvagleraugum fyrir íbúa á Vestfjörðum og gefur öllum íbúum sérstök sólmyrkvagleraugu.
Vefmiðillinn BB, bæjarins besta, greinir frá þessu. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og verða gleraugun afhent íbúum á skrifstofu Strandabyggðar 13. til 17. júlí. Þá má einnig nálgast sólmyrkvagleraugu í Íþróttamiðstöð á opnunartíma hennar. Almyrkvinn verður 12. ágúst 2026 og magnast eftirvæntingin fyrir þessum atburði nú dag frá degi. Myrkvinn varir lengst við Látrabjarg eða í 2 mínútur og 13 sekúndur. Mun það vera lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi. BB segir að ef vel viðri séu miklar líkur á því að Vesturbyggð verði vinsælasti áfangastaður „almyrkvaunnenda“. Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, ritaði grein sem hann birti á Vísi 7. júlí þar sem hann fer yfir ýmsar gagnlegar upplýsingar sem vert er að hafa bak við eyrað. „Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og því má áætla að um og yfir 70% landsmanna sjái þetta stórbrotna náttúrundur að heiman frá sér. Á sama tíma verður deildarmyrkvi á öllu landinu austan slóðarinnar en á Norðfirði og Seyðisfirði hylur tunglið 95% af yfirborði sólar,“ segir Rúnólfur Hann segir að þetta mikla sjónarspil ætti að fanga athygli allflestra sem verða á landinu þennan dag. „Von er á mörgum hingað til lands sem koma sérstaklega til að verða vitni að þessari sjaldgæfu sjón og því viðbúið að fjöldi gesta jafnt sem heimamanna verði á faraldsfæti. Til að dagurinn verði sem ánægjulegastur fyrir flesta er mikilvægt að undirbúa sig vel.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vesturbyggð Öryggi á ferðamannastöðum Ferðalög Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira