Grobba sig af stolnum trjám Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. júlí 2026 19:18 Trén þrjú voru í þessum lundi en Örn Óskarsson formaður Skógræktarfélags Selfoss segir þjófa áður hafa stolið verðmætum trjám í skóginum. Vísir/Ívar Fannar Trjáþjófnaður er landlægt vandamál að mati formanns Skógræktarfélags Selfoss en trjám var stolið úr Hellisskógi á Selfossi um helgina. Honum svíður að fólk steli trjám úr skógum sem sjálfboðaliðar hafi unnið hörðum höndum að því að byggja upp.
Fjörutíu ár eru síðan fyrstu trjánum í Hellisskógi var plantað en áður voru þar aðeins móar og mýrar. Síðan þá hefur skógurinn vaxið og dafnað vel og verið vinsælt útivistarsvæði. Örn Óskarsson formaður Skógræktarfélags Selfoss hefur staðið vaktina frá upphafi en um helgina áttaði hann sig á því að nokkur tré höfðu verið tekin úr skóginum. Um þrjú tré var að ræða eða virginíuhegg, garðahlyn og hrossakastaínu en öll voru hátt í tveir metrar á hæð. „Allt mjög stæðileg tré og mikið til grósku. Þetta hefur verið tekið oft áður en oft þá bara eitt og eitt. Svo hafa komið undantekningar en dæmi eru um það að menn hafi fyllt garð hérna niðri á Selfossi af stolnum trjám úr Hellisskógi og grobbað sig af því,“ segir Örn. Gróðursett af sjálfboðaliðum Hann telur ólíklegt að trén lifi af þar sem þeim var kippt upp með rótum. Í sumar hafi einnig horfið tré í miðbæ Selfoss og við sundlaugina í bænum. Þá komi reglulega upp mál þar sem tré eru tekin úr skógum landsins. „Þetta er náttúrulega landlægt vandamál að verða og virðist vera vaxandi og þá oft teknar einhverjar verðmætar tegundir sem eru hugsanlega dýrar í gróðrarstöðvum. Þannig að margir hverjir vita alveg hvað þeir eru að gera. Til tals hefur komið að setja upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu. Örn segir að sér svíði að fólk steli trjám úr skógum sem hópur sjálfboðaliða hafi eytt ómældum tíma í að byggja upp. „Að menn skuli virkilega hafa einhverja ánægju af því að hafa stolið tré í garðinum. Það er í fyrsta lagi að horfa á það kannski alla daga og dást að því og svo þetta að menn geri sér grein fyrir því að þetta er vinna oft og tíðum sjálfboðaliða. Þetta er ákveðinn kostnaður oft og tíðum sem felst í því að rækta þetta og náttúrulega algjör synd að síðan komi einhverjir óvitar bara og steli og haldi að þeir græði einhverjar krónur.“
Tré Skógrækt og landgræðsla Árborg Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira