Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Eiður Þór Árnason skrifar 13. júlí 2026 21:49 Avraham Feldman fyrir miðju ásamt fríðu förneyti. Gabriel Rutenberg/Israel Sudry Ný fjölnota menningarmiðstöð gyðinga hefur verið opnuð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið nefnt Beit Shvidler Jewish Center of Iceland. „
Eftir meira en 100 ára sögu gyðinga á Íslandi erum við svo spennt að hafa loksins varanlegt heimili fyrir samfélag gyðinga, og menningarhús gyðinga sem allir geta notið!“ skrifar Avraham Feldman rabbíni á Facebook um opnunina í síðustu viku. „Takk til allra sem hjálpuðu til við að láta þetta ótrúlega kraftaverk verða að veruleika!!“ Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, var viðstaddur opnunarathöfnina og las þar ávarp frá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra sem var þá á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Tyrklandi. Hann flutti svo sjálfur ræðu við þetta sögulega tilefni. „Ég lauk orðum mínum á að minnast [á] þá sorglegu staðreynd að margir gyðingar á Íslandi hafa verið hræddir um öryggi sitt og jafnvel orðið fyrir aðkasti. Það hefur orðið til þess að margir hafa kosið að halda því leyndu að þeir séu gyðingar. En ég bætti því við að það er ekki mitt mat að Íslendingar séu rasistar eða gyðingahatarar heldur frekar óupplýstir. Því er svona menningarmiðstöð mikilvæg því hún er ekki bara bygging heldur lifandi skólabrú sem eyðir fáfræði, skapar skilning, samfélag og vináttu,“ skrifar Jón í færslu á Facebook-síðu sinni. Þingmaðurinn var viðstaddur opnunarhátíðina.Gabriel Rutenberg/Israel Sudry Keyptu húsið árið 2024 Feldman rabbíni flutti til Íslands ásamt eiginkonu sinni Mushky Feldman og börnum árið 2018. Hjónin keyptu fyrst minna húsnæði árið 2022 með það í huga að koma þar á fót menningarmiðstöð, að því er fram kemur í frétt Jerusalem Post. Þau festu síðan kaup á Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu árið 2024 og hófu að gera það upp. Húsið er á þremur hæðum og má þar finna verslun, sýningu um líf gyðinga á Íslandi og rými sem verður mögulega nýtt undir kaffihús eða veitingastað sem starfar í samræmi við helgisiði gyðinga (e. kosher).
Reykjavík Trúmál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira