Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júlí 2026 20:33 Vætusamt hefur verið á landinu vestanverðu í júlí. Vísir/Vilhelm Fyrri hluti júlí er sá votasti í Reykjavík frá upphafi mælinga en úrkoma mældist 65 millimetrar. Það er meira en tvöföld meðalúrkoma, sé miðað við árin 1991 til 2020. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur gert upp veðurfar á landinu þennan fyrri part mánaðar á bloggi sínu.
Íbúar Reykjavíkur eiga hremmingarsystkin í Stykkishólmi en þar hefur úrkoma aldrei mælst meiri fyrri hluta júlí. Hólmarar gætu jafnvel sagt að úrkoman hafi verið djöfulleg, en hún mældist 66,6 millimetrar á tímabilinu. Þegar horft er til hitastigs í Reykjavík í fyrri helmingi júlímánaðar mældist hiti undir meðallagi, eða 10,5 stig. Það er 0,8 stigum undir meðaltali fyrir árin 1991 til 2020. Hlýjastur var fyrri helmingur mánaðarins í Reykjavík árið 2007 þegar meðalhiti var 13,3 stig. Hiti var hins vegar umtalsvert yfir meðaltali á Akureyri. Þar var hann 13,6 stig sem er 2,8 stigum yfir meðaltali. Á Austfjörðum hefur fyrri hluti júlí ekki verið jafn hlýr á þessari öld. Sólskinsstundir í Reykjavík voru langt undir meðaltali. Þær mældust 58,4 sem er 27 stundum minna en í meðalári. Ástandið var þó verra 2021 þegar sólskinsstundirnar voru aðeins átján allan fyrri hluta mánaðarins. Sólin lék á sama tíma við Norðlendinga, sólskinsstundir mældust 83,3 á Akureyri, sem er átta fleiri en á meðalári.
Veður Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Sjá meira