„Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. júlí 2026 19:31 Eva Hauksdóttir er lögmaður og dóttir Dönu Jóhannsdóttur. vísir/ívar fannar Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum.
Héraðsdómur Reykjaness vísaði í gærmorgun frá máli héraðssaksóknara á hendur Skúla Tómassyni Gunnlaugssyni sem var kærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Frávísunin var byggð á því að Skúla hafði þegar verið refsað vegna málsins þegar að landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021. Í úrskurði dómsins kemur fram að ekki megi refsa manni tvisvar fyrir sama brot og var ákvörðun landlæknis túlkuð sem sakfelling. Ellefu mál er varða Skúla komu til kasta lögreglu. Þar af voru sex andlát rannsökuð sérstaklega. Fimm þeirra mála voru felld niður en Skúli ákærður fyrir að setja sjúkling sinn, Dönu Jóhannsdóttur, í lífslokameðferð án fyllilegrar ástæðu. Eva Hauksdóttir, lögmaður og dóttir Dönu, segir úrskurðinn vonbrigði. Ég er bara rosalega pirruð yfir þessu. Ég er að reyna að vera í sumarfríi og svo er ég náttúrulega bara komin á kaf í dóma Mannréttindadómstólsins. Þetta svona fokkar svolítið upp allavega nokkrum dögum hjá okkur. Já, og meira en það því Landsréttur tekur þetta ekkert fyrir alveg strax. Ég verð mjög hissa ef ákæruvaldið fer ekki með þetta fyrir Landsrétt.“ Hún segir ótækt að líta svo á að svipting starfsleyfis teljist sem refsing í skilningi laganna. Alma Möller, heilbrigðisráðherra sem þá var landlæknir, hafi setist niður með Evu á sínum tíma. „Við fórum á fund hjá landlækni og okkur var afhent þessi álitsgerð og þá sagði Alma við okkur að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja myndi fara með þetta til lögreglu og hún lagði áherslu á það að embættið gæti ekki refsað fólki,að það væri ekki hlutverk embættisins að taka neina afstöðu til slíks, heldur væri tilgangurinn með starfsleyfissviptingu sá að tryggja öryggi sjúklinga.“ Ef niðurstaðan standi óbreytt muni það hafa afleiðingar í för með sér. „Þýðir þetta þá það að það verði bara aldrei hægt að beita neinum stjórnsýsluviðurlögum án þess að það verði litið á það sem tvöfalda refsingu fyrir dómi. Það yrði að endurskoða ansi margt. Mér finnst það náttúrulega ömurlegt sem aðstandanda en minn hvati að þessu máli er ekki sá að refsa Skúla Tómasi. Auðvitað þarf að gera það. Það þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun. Minn hvati að þessu máli snýr hins vegar ekki að honum heldur að því að það fáist viðurkenning á því sem gerðist og það verði gert eitthvað til að koma í veg fyrir að það gerist aftur,“ segir hún og bendir á að Skúli hafi aftur fengið starfsleyfi árið 2024. „Og þótt hann hafi verið sviptur starfsleyfi þá fékk hann vinnu hjá Landspítalanum við að greina Covid-sýni eða eitthvað í þá veruna og var látinn sinna sjúklingum í neyðartilvikum, hvað sem það nú er. Það var ekki eins og hann væri atvinnulaus.“ Hamingjuóskum rigndi yfir Skúla Tómas í kjölfar þess að hann greindi frá frávísuninni á Facebook í gær. „Ég hef nú verið að fylgjast með umræðum á netinu og það virðist nú vera alveg ótrúlegt hvað fólk getur lagt undarlegan skilning í fréttir af þessum úrskurði. Hann segir ekki að Skúli Tómas sé saklaus heldur að það sé búið að refsa honum. Að hann hafi verið sakfelldur og honum hafi verið refsað, þannig að dómararnir eru í rauninni að viðurkenna það að hann hafi verið sakfelldur. Við skulum hafa það í huga. Þetta er ekki gott fyrir hann og hans orðspor.“
Læknamistök á HSS Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira