Sexan millilendir aftur í Reykjavík Kristján Már Unnarsson skrifar 2. ágúst 2026 12:44 DC 6B-flugvélin við gamla Loftleiðahótelið þann 7. júlí síðastliðinn. Í dag gæti verið síðasta tækifærið til að sjá slíka flugvél lenda á Reykjavíkurflugvelli. Sigurjón Ólason Douglas DC 6B-flugvél austurríska félagsins The Flying Bulls er væntanleg til Reykjavíkur síðdegis í dag á heimleið úr fjögurra vikna sýningarflugi um Bandaríkin. Þetta er eina flughæfa sexan í heiminum sem hefur leyfi til að fljúga með farþega.
Sexan millilenti einnig í Reykjavík þann 7. júlí síðastliðinn á leið sinni vestur um haf og vakti koma hennar mikla athygli meðal íslenskra flugáhugamanna. DC 6 hafði þá ekki sést á Reykjavíkurflugvelli í aldarþriðjung. Flugvélin er núna á leiðinni frá Gander á Nýfundnalandi en þaðan fór hún í loftið klukkan 11:25 í morgun, samkvæmt Flightradar 24. Gera má ráð fyrir að hún verði fimm til sex klukkustundir á leiðinni og gæti lending í Reykjavík verið um klukkan 17:30. Áhöfnin mun dvelja í borginni yfir nótt og er áætlað að brottför frá Reykjavík verði rétt fyrir klukkan 9 fyrramálið, samkvæmt upplýsingum frá Íslenska flugafgreiðslufélaginu Reykjavík FBO. DC-6B flugvél Flying Bulls yfir New York þann 11. júlí síðastliðinn. Manhattan í baksýn.Colin Kerrigan/Red Bull Þetta var fyrsta ferð hennar yfir Norður-Atlantshaf í 68 ár en hún hafði ekki komið til Bandaríkjanna eftir að smíði hennar lauk í Douglas-flugvélaverksmiðjunni í Santa Monica í Kaliforníu árið 1958. Hún var upphaflega keypt sem forsetaflugvél fyrir Josip Broz Tito, leiðtoga Júgóslavíu, sem seldi hana árið 1975 til Kenneths Kaunda, leiðtoga Zambíu. Í vesturförinni flaug flugvélin meðal annars yfir New York-borg og skýjakljúfa Manhattan en megintilgangur ferðarinnar var að taka þátt í Oshkosh-flughátíðinni í Wisconsin. Frá Oshkosh var henni flogið í sýningarflug til borga eins og Minneapolis og Chicago. Önnur fræg flugvél Flying Bulls, P-38 Lightning, fylgdi sexunni vestur um haf en sú kom við í Reykjavík á fimmtudag. P-38 Lightning fylgdi sexunni í lágfluginu yfir New York.Colin Kerrigan/Red Bull DC 6B-flugvélar voru burðarásinn í millilandaflugi íslensku flugfélaganna, bæði Loftleiða og Flugfélags Íslands, á árunum frá því um og fyrir 1960 og þar til þotuöldin gekk í garð. Þær lögðu grunninn að mestu velgengnisárum Loftleiða með Norður-Atlantshafsflugi félagsins. Mjög fáar eru eftir flughæfar í heiminum, aðeins um einn tugur, og verður sífellt erfiðara að halda þeim gangandi. Núna síðdegis gæti því verið síðasta tækifæri til að sjá slíka vél lenda á Íslandi. Hér má sjá komu hennar til Reykjavíkur þann 7. júlí:
Flug Reykjavíkurflugvöllur Icelandair Tengdar fréttir Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Flugvél sem lék lykilhlutverk í millilandaflugi og alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga í byrjun sjöunda áratugarins lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Þetta er svokölluð sexa, eða Douglas DC 6B. 7. júlí 2026 21:10 Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira
Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Flugvél sem lék lykilhlutverk í millilandaflugi og alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga í byrjun sjöunda áratugarins lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Þetta er svokölluð sexa, eða Douglas DC 6B. 7. júlí 2026 21:10
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44