Körfubolti

Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hilmir Arnarson er kominn í Stjörnuna og hann fór sérstaka leið til þess að komast þangað.
Hilmir Arnarson er kominn í Stjörnuna og hann fór sérstaka leið til þess að komast þangað. mynd/stjarnan

Stjarnan tilkynnti í gær að félagið hefði samið við hinn efnilega leikmann, Hilmi Arnarson, til næstu tveggja ára.

Leikmaðurinn kemur til félagsins frá Álftanesi þar sem hann lék á síðasta tímabili. Þangað kom hann frá Haukum.

Hilmir var samningsbundinn Álftnesingum og því þurfti að greiða ákveðna upphæð fyrir leikmanninn svo hann gæti skipt um félag.

Í frétt Vísis í gær var sagt að Stjarnan hefði greitt fyrir leikmanninn. Það hafa forráðamenn Stjörnunnar staðfest í samtali við Vísi en það gerðu þeir með því að ná samkomulagi við leikmanninn.

„Er ég vildi losna frá Álftanesi var mér tjáð að það þyrfti að borga ákveðið gjald til að losa mig. Ég ræddi það við Stjörnuna og þeir voru ekki til í að greiða það gjald,“ segir Hilmir í samtali við Vísi nú síðdegis.

„Þá bauðst ég til þess að taka á mig launalækkun til að koma til móts við þetta gjald sem þurfti að borga fyrir mig. Stjarnan sér svo um að greiða þetta gjald til Álftaness til að klára málið.“

Hilmir vildi að öðru leyti ekki tjá sig meira um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×