Körfubolti

Full­komin byrjun ís­lensku drengjanna heldur á­fram

Aron Guðmundsson skrifar
Úr leik dagsins. Hér er Hlynur Ingi Finnson, leikmaður Íslands og Sindra með boltann
Úr leik dagsins. Hér er Hlynur Ingi Finnson, leikmaður Íslands og Sindra með boltann Mynd: FIBA

Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum sextán ára og yngri heldur áfram að tæta í sig andstæðinga sína í B-deild Evrópumótsins í körfubolta. Liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa. 

Það héldu strákunum okkar engin bönd núna í morgun þegar að liðið vann stórsigur á landsliði Sviss þar sem að lokatölur urðu Evrópumótinu 96-52, Íslandi í vil. 

Leikið er í Gevgalija í Norður-Makedóníu og var sigur íslenska landsliðsins aldrei í hættu í dag. Liðið leiddi allan leikinn og bætti við forystu sína eftir því sem leið á. 

Atli Freyr Haraldsson, leikmaður Vals hér heima, var stigahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í dag með 16 stig. Að auki tók hann níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. 

Jón Breki Sigurðarson, leikmaður Stjörnunnar, átti einnig skínandi leik. Jón Breki setti niður sex stig en tók þrettán fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Að auki stal hann tveimur boltum og varði fimm. 

Þrír sigrar í þremur leikjum. Næsti leikur íslenska landsliðsins er á mánudaginn kemur gegn Kýpur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×