Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Freyja Þórisdóttir skrifar 12. ágúst 2026 11:30 Frá Arnarstapa, Hellnum og Búðum er útsýnið glæsilegt í átt að myrkvanum með Snæfellsjökul í forgrunni. Vísir/Ívar Fannar Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur.
Þessi er sjöundi og síðasti í röð fróðleiksmola á Vísi sem hafa birst reglulega vikuna fram að því að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Miðborgin myrkvuð í eina mínútu Það er hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um myrkvann á vefsíðunni sólmyrkvi2026.is en þar er einnig hægt að skoða gagnvirt kort þar sem unnt er að sjá hvenær myrkvinn hefst, nær hámarki og honum lýkur. Þá er einnig mögulegt að fletta upp heimilisföngum og skoða hvenær myrkvinn skellur á þar. „Í fyrsta sinn síðan 17. júní 1433 liggur almyrkvaslóðin yfir höfuðborgarsvæðið. Í Reykjavík hefst almyrkvinn kl 17:48:12 þegar sólin er í 24,5 gráðu hæð á vesturhimni,“ segir á vefnum. Á höfuðborgarsvæðinu öllu velti lengd almyrkvans nokkuð á því hvar þú sért staddur/stödd/statt og að í miðborginni sé sólin almyrkvuð í eina mínútu. Við Gróttu njóta gestir almyrkvans 6 sekúndum lengur. Fjallað var um götulokanir hér en meðal annars verða lokanir á Seltjarnarnesi og aukið viðbragð víða. Stysti glugginn tæpar fimm sekúndur Vestast í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði standi almyrkvinn í um það bil mínútu, eins og við Sky Lagoon, úti á Bessastöðum og Hvaleyri en á vefnum er fólk hvatt til að ganga úr skugga um að engar háreistar byggingar byrgi sér sýn. Mikill fjöldi fólks verður samankominn á Snæfellsnesi en á Hellissandi, þar sem sólmyrkvahátíð verður haldin, nær skugginn svæðinu um klukkan 17:45 en þar stendur hann yfir í um tvær mínútur og sjö sekúndur. Almyrkvinn sést frá öllum þéttbýlissvæðum nessins. Frá Grundarfirði er hægt að sjá myrkvann með Kirkjufell í forgrunni. Þaðan stendur myrkvinn yfir í eina mínútu og 50 sekúndur og er líklegt að staðurinn verði vinsæll. Í Stykkishólmi sést almyrkvi í eina mínútu og 23 sekúndur. Þaðan er ákaflega fallegt útsýni yfir fjöllin á Snæfellsnesi. Gestir í Bláa Lóninu munu geta fylgst með almyrkvanum á meðan þeir slaka á í lóninuí rúma eina og hálfa mínútu en viðbúið er að fjöldi fólks leggi leið sína út á Reykjanesskaga til að berja almyrkvann augum. Á þeim svæðum landsins sem eru ekki á almyrkvaslóð verður hægt að fylgjast með deildarmyrkva en hann verður minnstur frá Neskaupsstað á Austurlandi. Aðeins tvö þéttbýlissvæði eru á jaðri almyrkvaslóðarinnar, Hvanneyri og Mosfellsdalur. Á Hvanneyri sést almyrkvi í 1 til 5 sekúndur en það veltur á því hvar athugandi er. Við höfum þegar snert á því hvers vegna venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst, hverju fólk má búast við ef það rætist úr veðurspá og það verður skýjað þegar almyrkvinn verður, hvernig myrkvinn þann 12. ágúst næstkomandi sé ólíkur þeim sem var árið 2015, hvernig myrkvarnir hafa dreifst í gegnum tíðina hérlendis, hvaða undur munu keppast um athyglina á himni þann 12. ágúst næstkomandi og hvort dýr þurfi að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst. Almyrkvi Einnig má sjá götulokanir á höfuðborgarsvæðinu ef þysjað er inn. Smellið á línurnar fyrir frekari upplýsingar.
Geimurinn Tunglið Sólin Almyrkvi 12. ágúst 2026 Látrabjarg Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira