Körfubolti

Stór­brotin endur­koma næstum því nóg í úr­slita­leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði yfir þrjátíu stig í öllum leikjum íslenska liðsins á mótinu.
Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði yfir þrjátíu stig í öllum leikjum íslenska liðsins á mótinu. FIBA Basketball

Íslenska sextán ára landslið kvenna í körfubolta komst ekki upp í A-deild Evrópukeppninnar en liðið tapaði með þremur stigum á móti heimastúlkum í Grikklandi, 75-72, í úrslitaleik í kvöld.

Íslensku stelpurnar höfðu unnið alla leiki sína í keppninni en réðu ekki við sterkt grískt lið í úrslitaleiknum.

Íslenska liðið sýndi samt mikinn karakter með því að vera næstum því búið að vinna upp 24 stiga forskot Grikkja á lokamínútunum.

Stjörnukonan Berglind Katla Hlynsdóttir hefur verið stórkostleg á þessu móti og átti enn einn stórleikinn í kvöld. Það var bara ekki nóg.

Berglind Katla Hlynsdóttir endaði leikinn með 34 stig, 9 fráköst, 2 stoðsendingar, 2 varin skot og 26 framlagsstig.

Hún skoraði 13 af 19 stigum Íslands í fyrsta leikhlutanum og var komin með 21 stig í hálfleik.

Grikkland var bara tveimur stigum yfir, 21-19, eftir fyrsta leikhlutann en var komið með átta stiga forskot í hálfleik, 45-37.

Gríska liðið náði mest 24 stiga forskoti í seinni hálfleiknum en íslensku stelpurnar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn aftur niður í tvö stig, 72-70, þegar innan við tvær mínútur voru eftir af leiknum.

Berglind gat þá jafnað metin með því að setja niður tvö vítaskot en klikkaði á báðum og gríska liðið slapp með skrekkinn.

Stjörnukonan Eva Ingibjörg Óladóttir var með 18 stig, 6 fráköst og 2 stolna bolta en Valsstelpan Rún Sveinbjarnardóttir var með 11 stig, 7 fráköst og 5 stolna bolta. 

Keflvíkingurinn Oddný Hulda Einarsdóttir skoraði 5 stig og tók 4 fráköst og kollegi hennar úr Keflavík, Björk Karlsdóttir, skoraði ekki en var með 9 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×