Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2026 15:02 Berglind Katla Hlynsdóttir tekur við verðlaunum fyrir að vera valin besti leikmaður B-deildar Evrópumóts U-16 ára landsliða kvenna. kkí Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði þrjátíu stig eða meira í öllum fjórum leikjum íslenska U-16 ára landsliðsins í körfubolta í B-deild Evrópumótsins. Hún var valin besti leikmaður EM.
Ísland mætti heimaliði Grikklands í úrslitaleik um sæti í A-deild í gær. Grikkir höfðu betur, 75-72, þrátt fyrir frábæran endasprett Íslendinga. Berglind skoraði 34 stig í úrslitaleiknum, tók níu fráköst, gaf tvær stoðsendingar, varði tvö skot og skilaði 26 framlagsstigum. Helstu tilþrif hennar úr úrslitaleiknum má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by europe ID (@europe_id) Berglind skoraði yfir þrjátíu stig í öllum leikjum Íslands á EM, eða 32,3 stig að meðaltali í leik. Alls skoraði hún 129 stig á EM, 46 stigum meira en næsti leikmaður á blaði, hin danska Mille Boje Sorensen. Hún skoraði 83 stig, eða 20,8 stig að meðaltali í leik. View this post on Instagram A post shared by europe ID (@europe_id) Auk þess að skora 32,3 stig að meðaltali í leikjunum fjórum á EM skilaði Berglind 8,8 fráköstum, 4,3 stoðsendingum, 4,0 stolnum boltum, 2,8 vörðum skotum og 30,5 framlagsstigum. Berglind var ekki bara stigahæsti leikmaður mótsins heldur var hún sú sem varði flest skot á EM og skilaði flestum framlagsstigum. Eftir úrslitaleikinn í gær fékk Berglind Gullboltann sem er veittur besta leikmanni EM. Berglind var einnig í hópi stigahæstu leikmanna á EM U-20 ára fyrr í sumar, þrátt fyrir að vera að spila fjögur ár upp fyrir sig. Í Bónus deildinni á síðasta tímabili skoraði Berglind 12,6 stig að meðaltali í leik fyrir Stjörnuna, tók 5,1 frákast og gaf 2,6 stoðsendingar.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Sjá meira