„Ég get ekki orða bundist“ Árni Sæberg skrifar 13. ágúst 2026 16:43 Ingibjörg er ekki ánægð með að ráðuneyti Þorgerðar Katrínar hafi deilt grein eftir hana. Vísir/Vilhelm/Anton Brink Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins.
Fyrir hádegi var greininni Allt að vinna eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra deilt á Facebooksíðu utanríkisráðuneytisins. Í greininni fjallar ráðherra, eins og flestir hefðu búist við, um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Bændur hafi engu að tapa og allt að vinna „Ég skil vel að bændur vilji vita meira um framtíð sína. Það er okkur eðlislægt. Nýútkomin skýrsla Bændasamtakanna sem kynnt var í liðinni viku um áhrif aðildar á bændur gefur tilefni til að velta upp hvað hugsanleg aðild gæti þýtt fyrir þann hóp sem þessi grein fjallar um - unga bændur og nýliðun í landbúnaði,“ segir hún meðal annars, með vísan til nýrrar skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Þorgerður Katrín veltir því meðal annars upp í grein sinni hvers vegna ætti ekki kanna til hlítar hvaða samningum er hægt að ná í samningaviðræðum við Evrópusambandið og hanna á sama tíma nýtt stuðningskerfi með hagsmuni bænda að leiðarljósi og þar með hagsmuni Íslands. „Með tilliti til nýliðunar í landbúnaði höfum við engu að tapa og allt að vinna. Svo tökum við ákvörðun um aðild þegar við sjáum samninginn.“ Getur ekki orða bundist Svo virðist sem deiling ráðuneytisins á grein ráðherra hafi farið öfugt ofan þónokkra, meðal annarra Ingibjörgu Davíðsdóttur þingmann. „Ég get ekki orða bundist og þykir minn gamli vinnustaður fara hér yfir strik á mjög viðkvæmum tímapunkti í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Það verður að gera ráð fyrir því að ráðuneytið dreifi þessu efni að fyrirmælum utanríkisráðherra Viðreisnar. Hvað gengur utanríkisráðuneytinu til, að dreifa á miðlum ráðuneytisins, pólitísku efni utanríkisráðherra Viðreisnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst næstkomandi?“ segir hún í athugasemd við færslu ráðuneytisins. Þá segir hún að í gildi séu siðareglur, sem mögulega sé farið á svig við með deilingunni. Hún telji ráðuneytið með þessu fara inn á ansi grátt svæði, sem þarfnist skoðunar þar til bærra aðila. „Hér gæti mögulega umboðsmaður Alþingis haft frumkvæði að slíkri athugun.“ Vísar í siðareglur Ráðuneytið hefur svarað Ingibjörgu og bent henni á að löng hefð sé fyrir því að af hálfu utanríkisráðuneytisins sé vakin athygli á greinum sem ráðherra utanríkismála skrifar í íslenska fjölmiðla undir nafni og í krafti embættis síns. Reynt sé jafnframt eftir föngum að halda þeim til haga á vísum stað. Þá séu greinar fyrri utanríkisráðherra sömuleiðis geymdar. Ingibjörg virðist gefa lítið fyrir þessar skýringar ráðuneytisins, deilir hlekk á siðareglur ráðherra og bendir sérstaklega á eftirfarandi grein: Ráðherra gerir skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosningar, og verkefnum ráðuneytis síns hverju sinni. Hann felur starfsmönnum ráðuneyta, öðrum en aðstoðarmanni, ekki verkefni sem tengjast hinu fyrrnefnda.
Miðflokkurinn Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfélagsmiðlar Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Sjá meira