Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 14:25 Kannski leynist einhver Jean í þessum hópi fólks. Vísir/Vilhelm Mannanafnanefnd hefur samþykkt tólf ný mannanöfn, sjö karlkyns, fjögur kvenkyns og eitt kynhlutlaust nafn. Tvö nafnanna flæktust aðeins fyrir nefndinni.
Nýju karlkynsnöfnin sem Mannanafnanefnd samþykkti eru Örri, Jean, Lerkir, Araþon, Húrinn, Herner og Hugríkur. Kvenkynsnöfnin eru Rúa, Mila, Drangey og Aelía en eina kynhlutlausa nafnið er Blóm. Úrskurðirnir féllu frá 15. júlí til 12. ágúst. Til þess að nefndin samþykki nýtt mannanafn þarf það að uppfylla fjögur skilyrði. Í fyrsta lagi verður það að geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, í öðru lagi má það ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi, í þriðja lagi verður það að vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti og í fjórða lagi má það ekki vera þannig að það geti orðið þeim sem ber nafnið til ama. Tíu nöfn af þessum tólf áðurnefndu voru talin uppfylla allar þessar reglur en nefndin velti bæði Jean og Aelía betur fyrir sér. Jean er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur þar sem samstafan ea kemur ekki fyrir í ósamsettum orðum. Fyrri umsókn um nafnið var hafnað bæði árið 2010 og 2012 en núna bera þrettán einstaklingar nafnið Jean á Íslandi. Sá elsti er fæddur árið 1961. Nafnið kemur fyrir í fimm mannatölum frá árinu 1703 til 1920 svo nefndin taldi að hefð væri fyrir rithætti þess. Nefndin samþykkti einnig nafnið Aelía en benti á að Aelia væri tökunafn ættað úr latínu. Hins vegar með því að bæta við í-inu væri búið að aðlaga það að íslenskum ritvenjum og því samþykkt.
Mannanöfn Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira