Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2026 09:31 Jean-Philippe Mateta er þekktur fyrir að fagna mörkum sínum með því að sparka í hornfánann. Getty/Sebastian Frej Franski sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta hjá Crystal Palace þakkar nú AC Milan eftir að hafa misst af félagaskiptum til ítalska stórliðsins vegna þess að hann stóðst ekki læknisskoðun.
Sóknarmaður Crystal Palace, Jean-Philippe Mateta, virtist vera að fá ósk sína uppfyllta í félagaskiptaglugganum um miðjan síðasta vetur. Franski sóknarmaðurinn var á leið til ítalska stórliðsins AC Milan. Það eina sem stóð í veginum var hin hefðbundna læknisskoðun, sem yfirleitt er formsatriði. En það var ekki raunin í þetta skiptið. Læknateymi Milan fann nefnilega vandamál í hné Mateta, sem varð til þess að félagið hætti við kaupin. „Ég var í miðri læknisskoðun og allt í einu stöðvaðist allt,“ sagði Mateta við Canal+ Foot, samkvæmt Football Italia. Jean-Philippe Mateta raconte avec lucidité son transfert avorté en Serie A, alors qu’il devait s’engager avec l’AC Milan 🇮🇹La suite de notre série documentaire STRIKERS, c’est demain à 21H00 sur CANAL+ 🍿 pic.twitter.com/B0sPsDf4KW— CANAL+ Foot (@CanalplusFoot) August 15, 2026 „Hnémeiðslin mín voru í raun alvarlegri en mér hafði verið sagt. Á því augnabliki þegar þeir útskýrðu þetta fyrir mér fóru alls konar hugsanir í gegnum huga minn,“ sagði Mateta Þrátt fyrir að franski sóknarmaðurinn hafi verið vonsvikinn eftir að hafa fallið á læknisskoðuninni þakkar hann Milan í dag fyrir að þetta hafi uppgötvast. „Að lokum sé ég ekki eftir neinu, því ef ég hefði ekki farið í þessa læknisskoðun, hversu lengi hefði ég þá gengið um með þessi hnévandamál? Þetta var alvarlegra en ég hélt,“ sagði Mateta. Hnévandamálin eiga rætur sínar að rekja til hnémeiðsla sem hann varð fyrir árið 2019 þegar hann lék með Mainz. Þá fór hann í aðgerð sem hélt honum frá keppni í sex mánuði, en hann glímdi þó einnig við vandamál árin á eftir. Hvað sem öllu líður er sóknarmaðurinn ánægður með að þetta hafi uppgötvast. „Sem betur fer fór ég í þessa læknisskoðun og komst að því nákvæmlega hvað var að mér,“ sagði Mateta en hann er með samning við Crystal Palace til sumarsins 2027. Oliver Glasner admits Crystal Palace knew Jean-Philippe Mateta might fail his AC Milan medical."He [Mateta] knew it. We can either manage the knee like we did until after the World Cup. Or he undergoes surgery. Could be out for 2, 3, 6-9 months."pic.twitter.com/gDIs6sDBLi— Kyama ⚽ (@ElijahKyama_) February 6, 2026
Enski boltinn Crystal Palace FC Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Nýr Camp Nou míglekur Fótbolti Harmsaga Mudryk heldur áfram Enski boltinn Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Fótbolti Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Sjá meira