Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Já 18. ágúst 2026 11:35 Já kynnti nýlega til sögunnar nýja og spennandi vöru sem nefnist Já+. Helgi Reynir Guðmundsson (t.v.), er sölustjóri Já og Guðmundur Pétur Dungal Níelsson er innleiðingarstjóri Já+. Viltu tryggja að fyrirtæki þitt sé með samræmd gögn á stafrænum snertiflötum og njóti betri sýnileika, bæði í gervigreindarleit og hefðbundinni leit á netinu? Þá er Já+ rétta varan fyrir þig.
Hver kannast ekki við að sjá rangan opnunartíma á Google, gamalt símanúmer á Facebook eða úrelt heimilisfang sem enn dúkkar upp í leit? Það þarf ekki mikið til að rangar upplýsingar um fyrirtæki fari á flakk á netinu og eftir því sem stöðunum fjölgar þar sem viðskiptavinir leita að fyrirtækjum, vörum og þjónustu, verður sífellt erfiðara að halda utan um allt saman. Þetta er einmitt vandamálið sem Já+, ný þjónusta frá Já, á að leysa. Með Já+ geta fyrirtæki haldið utan um stafræna viðveru sína frá einum stað og miðlað upplýsingum á yfir 20 stafræna snertifleti. Markmiðið er einfalt: meiri sýnileiki, minni fyrirhöfn og betri stjórn á því hvaða upplýsingar viðskiptavinir finna. „Mörg fyrirtæki átta sig ekki á því hversu mikið af röngum upplýsingum er um þau á netinu fyrr en við förum yfir stafrænu snertifletina með þeim. Þá koma oft í ljós gamlar eða ósamræmdar upplýsingar sem hafa verið þar árum saman og geta valdið óþarfa óþægindum fyrir viðskiptavini,“ segir Helgi Reynir Guðmundsson, sölustjóri Já. Hvernig Já+ leysir þetta Já+ byggir á SyncMe-kerfi sem byggt er á tækni frá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Yext, sem sérhæfir sig í að hjálpa fyrirtækjum að halda upplýsingum um sig réttum og aðgengilegum á stafrænum miðlum. „Öll gögn eru skráð á einum stað (Knowledge Graph) og dreift þaðan á þá stafrænu miðla sem gervigreind og leitarvélar sækja upplýsingar frá,“ bætir Helgi við. „Með því að fylgja þessu handriti tryggja fyrirtæki tvennt: samræmd gögn alls staðar og betri sýnileika bæði í gervigreindarleit og hefðbundinni leit eins og Google og kortaleitum.“ Fyrir fyrirtæki þýðir þetta að þau geta verið fullviss um að upplýsingar um þau á netinu, t.d. um opnunartíma, þjónustu og staðsetningu, séu réttar alls staðar. „Þegar gervigreindin er t.d. spurð um bestu þjónustuna í einhverri atvinnugrein á tilteknu svæði sækir vélin svarið úr gögnum sem hún treystir, en ekki af handahófi. Yext hefur sýnt að langstærstur hluti af því sem gervigreind vitnar í kemur frá stöðum sem fyrirtæki stjórna sjálf, t.d. vefsíðu, skráningum og umsögnum,“ segir Guðmundur Pétur Dungals Níelsson, innleiðingarstjóri Já+. „Allt þetta og meira til er hægt að hafa áhrif á í stað þess að vona það besta. Með því að hafa allar skráningar og upplýsingar á réttum stöðum hjálpum við gervigreindinni að gefa betri svör og hún hjálpar okkur á móti með því að mæla með okkur.“ Með því að fylgja þessu handriti tryggja fyrirtæki tvennt: samræmd gögn alls staðar og betri sýnileika bæði í gervigreindarleit og hefðbundinni leit eins og Google og kortaleitum. Já+ hentar breiðum hópi fyrirtækja, allt frá einyrkjum og minni þjónustufyrirtækjum til stærri fyrirtækja með margar starfsstöðvar. Þarfirnar geta verið ólíkar en markmiðið er það sama: að spara tíma og tryggja að viðskiptavinurinn finni réttar upplýsingar, hvar sem hann leitar. Hversu víða þarf að breyta einum opnunartíma? Vandamálið er í grunninn hversdagslegt. Opnunartími breytist, fyrirtæki flytur, símanúmer breytist eða ný starfsstöð bætist við. Þá þarf að muna eftir vefsíðunni, Google-prófílnum, samfélagsmiðlum, kortaþjónustum og öðrum stöðum þar sem upplýsingar um fyrirtækið birtast. Jólaopnunartíminn sem gleymdist á Facebook eða gamla símanúmerið sem enn birtist á kortaþjónustu virðist kannski smávægilegt. Fyrir viðskiptavin sem mætir að læstum dyrum eða hringir í rangt númer getur það hins vegar verið nóg til að beina viðskiptunum annað. „Já+ er ekki bara framlenging á Já.is heldur sjálfstæð vara sem hjálpar fyrirtækjum að stjórna og samræma sýnileika og upplýsingar á netinu. Í dag þarf fyrirtæki að huga að því sem birtist um það á Google, kortum, gervigreindartólum, samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum rásum, ekki bara á einum stað,“ segir Helgi. Einn staður í stað margra Í Já+ eru lykilupplýsingar fyrirtækisins skráðar miðlægt. Þaðan er hægt að uppfæra meðal annars nafn, heimilisfang, símanúmer, opnunartíma, þjónustuþætti og myndir og miðla breytingunum áfram á fjölmarga stafræna miðla. Fyrirtæki geta jafnframt birt færslur á fleiri en einum miðli, unnið með leitarorð og sýnileika, sett upp samkeppnisgreiningar og fengið mánaðarlegt yfirlit yfir árangur. Umsagnir frá mismunandi miðlum safnast einnig saman á einum stað þar sem hægt er að fylgjast með þeim og svara. Já+ er ekki bara framlenging á Já.is heldur sjálfstæð vara sem hjálpar fyrirtækjum að stjórna og samræma sýnileika og upplýsingar á netinu. Guðmundur segir einfaldleikann vera stóran hluta af hugmyndafræðinni. „Markmiðið með Já+ er að fyrirtæki þurfi ekki að elta stafrænu viðveruna sína á tugum mismunandi staða. Við viljum að þau hafi einn stað þar sem þau geta byggt upp réttar upplýsingar og í kjölfarið tryggt að þær skili sér áfram þangað sem viðskiptavinir eru að leita.“ Við innleiðingu er farið yfir stafræna viðveru fyrirtækisins og upplýsingarnar sem þegar eru í umferð. Sú yfirferð getur einmitt leitt í ljós gamlar eða misvísandi upplýsingar sem erfitt hefði verið að koma auga á án þess að skoða heildarmyndina. Netleitin er að breytast Réttar upplýsingar snúast þó ekki eingöngu um að koma í veg fyrir að viðskiptavinur mæti á röngum tíma. Leitarumhverfið sjálft er að breytast hratt með aukinni notkun gervigreindar. Í hefðbundinni netleit fær notandinn gjarnan langan lista af niðurstöðum. Í gervigreindarleit fær hann hins vegar í auknum mæli stutt svar eða nokkrar tillögur. Fyrir fyrirtæki getur því skipt máli að upplýsingar um það séu skýrar, réttar og samræmdar á þeim stöðum sem leitarvélar og gervigreind nýta sér. „Það hefur lengi verið mikilvægt fyrir fyrirtæki að vera sýnileg í netleit. Nú er netleit að breytast hratt með tilkomu gervigreindar og fyrirtæki þurfa að huga að nýrri áskorun: að vera ekki aðeins finnanleg í hefðbundinni leit, heldur einnig þegar viðskiptavinir leita svara með hjálp gervigreindar,“ segir Helgi. Það þýðir ekki að hægt sé að kaupa sér sæti í svörum gervigreindar. Fyrirtæki geta hins vegar lagt grunninn að góðum stafrænum sýnileika með því að tryggja að upplýsingar um þau séu ítarlegar, réttar og samræmdar. Vefsíðan hluti af sömu heild Já+ býður einnig upp á vefsíðulausn fyrir fyrirtæki sem vilja faglega, hraða og leitarvélabestaða síðu án mikils flækjustigs. Hönnun og uppsetning, lén, hýsing, viðhald og vefgreining eru meðal þess sem er innifalið. Kosturinn er að vefsíðan verður hluti af sama stafræna vistkerfi og aðrar upplýsingar fyrirtækisins. Markmiðið er að vefsíðan, Google-prófíllinn og aðrir stafrænir snertifletir segi sömu sögu. „Þetta snýst í raun um að einfalda utanumhaldið. Fyrirtæki á ekki að þurfa að hugsa um vefsíðuna sem eitt verkefni, Google sem annað og umsagnir sem það þriðja. Með því að tengja þessa þætti saman verður bæði auðveldara að halda yfirsýn og bregðast við þegar eitthvað breytist,“ segir Guðmundur. Kjarninn í starfsemi Já hefur frá upphafi verið að tengja fólk við fólk og fólk við fyrirtæki. Með Já+ færist sú hugsun yfir í nýtt leitarumhverfi þar sem viðskiptavinurinn getur fundið fyrirtæki á sífellt fleiri stöðum. Fyrir fyrirtækið snýst áskorunin því ekki lengur bara um að vera á netinu. Hún snýst um að vera sýnilegt þar sem viðskiptavinurinn leitar og tryggja að upplýsingarnar sem hann finnur séu réttar. Kynntu þér málið betur á Já+.
Upplýsingatækni Tækni Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Samstarf Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira