Ráðuneytið birtir útreikningana Freyja Þórisdóttir skrifar 18. ágúst 2026 17:38 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra Íslands.Hún tók við embættinu þann 21. desember 2024 áður hún menntamálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/Einar/Vilhelm Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“
Í tilkynningunni á vef Stjórnarráðsins segir að við mat á kostnaði við aðild þurfi að taka tillit til beinna framlaga Íslands, þess sem Ísland fengi til baka úr sjóðum sambandsins og kostnaðar sem félli niður samhliða aðild vegna EES-samstarfsins. Með því megi leggja mat á raunframlag Íslands en sumir þáttanna séu óvissu háðir en myndu að hluta skýrast samhliða aðildarviðræðum. Því næst er það tekið fram að í samantektinni sé ekki lagt mat á óbeinan ávinning eða óbeinan kostnað af mögulegri aðild. Við matið hafi verið horft til raunframlaga Finnlands sem sé „strjálbýlt og harðbýlt eins og Ísland en líka vel stætt ríki innan sambandsins“. Vergar þjóðartekjur fimm þúsund milljarðar Raunframlag Finnlands til Evrópusambandsins hafi verið að meðaltali 0,21 prósent af þjóðartekjum á árunum 2015 til 2024 en 0,24 prósent á árunum 2020 til 2024. Miðað er við að nettóframlag Íslands væri um 0,2-0,3 prósent af vergum þjóðartekjum. Til samanburðar sé Þýskaland það ríki sem greiði hæst nettóframlag, að meðaltali 0,4 prósent á árunum 2015-2024, hæst 0,58 prósent árið 2021 en lægst 0,33 prósent árið 2024. Byggt á þeim forsendum hafi hugsanlegur kostnaður við aðild Íslands verið metinn þannig að vergar þjóðartekjur Íslands 2025 verði um fimm þúsund milljarðar króna. Viðmið fyrir nettóframlag sem hlutfall af vergum þjóðartekjum 0,2-0,3 prósent. Hugsanlegt nettóframlag Íslands til Evrópusambandsins um 10-15 milljarðar króna. Kostnaður vegna EES-samstarfsins verði svo um 2 milljarðar króna á ári, að frádregnu sex milljarða framlagi til samstarfsáætlana Evrópusambandsins. Beinn kostnaður við rekstur EES-samningsins sé átta milljarðar króna á ári en bent hafi verið á að hluti þess kostnaðar sé tekinn með í reikninginn þegar nettóframlög aðildarríkja séu reiknuð út. Því sé rétt að taka tillit til þess við mat á raunframlögum Íslands við hugsanlega aðild að Evrópusambandinu. Því gætu hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins, sem fyrr segir, orðið um átta til þrettán milljarðar króna. Við ofangreinda útreikninga á framlögum til Evrópusambandsins sé ekki tekið tillit til ýmissa þátta sem kunni að skipta máli við mat heildaráhrifa aðildar ríkja að Evrópusambandinu, s.s. lánskjara ríkissjóðs, viðskiptakostnaðar, vaxtakjara heimila og fleiri þátta. Upplýsingar um brúttó- eða nettóframlög endurspegli þannig aðeins hluta heildaráhrifa aðildar að Evrópusambandinu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 18. ágúst 2026 12:18 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 18. ágúst 2026 12:18