Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 08:27 Samtökin kalla eftir svörum frá stjórnvöldum. Vísir/Vilhelm Íslensk umhverfis- og dýravelferðarsamtök segja markaðsbrest fyrir sölu hvalkjöts undirstrika tilgangsleysi veiðanna. Í yfirlýsingu kalla samtökin eftir því að stjórnvöld axli ábyrgð og stöðvi veiðarnar. „
Ekkert dýr á að þurfa að há langdregið dauðastríð. Ekkert dýr á að þurfa að deyja í tilgangsleysi,“ segir í áskorun þeirra. Undir yfirlýsinguna skrifa þau Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina, Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Þorgerður M. Þorbjarnardóttir formaður Landverndar, Laura Sólveig Lefort Scheefer forseti Ungra umhverfissinna, Rósa Líf Darradóttir formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi, Aldís Amah Hamilton formaður Samtaka grænkera á Íslandi og Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands Þar er einnig bent á að fjöldi umhverfis- og dýravelferðarsamtaka hafi ítrekað kallað eftir banni við hvalveiðum. Í apríl hafi atvinnuvegaráðherra verið sent bréf þar sem bent var á lagalegar skuldbindingar Íslands, skort á fullnægjandi eftirliti og nauðsyn þess að stöðva veiðarnar. Þann 30. júní hafi síðan send formleg krafa um tafarlausa stöðvun hvalveiða. „Nú hefur 51 langreyður verið drepin á yfirstandandi vertíð. Hvalur hf. hefur hætt sölu til Japans og er með birgðir af hvalkjöti fyrri ára enn í frystigeymslum. Erfitt er að hugsa sér nöturlegri birtingarmynd tilgangsleysis þessara veiða en að stórhveli séu iðulega látin líða langvarandi og kvalafullan dauðdaga á sama tíma og kjötið safnast nú upp í frystigeymslum vegna skorts á kaupendum,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er einnig bent á að eftirlitsskýrslur MAST bendi til þess að 10 af 24 langreyðum sem höfðu verið veiddar 24. júlí hafi háð langdregin dauðastríð. „Nokkur dýr voru skotin oftar en einu sinni áður en þau dóu og tvö dýr háðu dauðastríð í yfir 30 mínútur,“ segir og að eitt alvarlegasta atvikið hafi verið 22. júní þegar langreyður var skotin fjórum sinnum á 31 mínútu. „Gögn MAST sýna að fyrsta skotið hæfði skilgreint marksvæði og sprengjan sprakk. Dýrið sökk og var talið dautt. Sex mínútum síðar kom það hins vegar aftur upp, synti og blés. Það var á lífi og með meðvitund. Þrjú skot til viðbótar þurfti áður en dýrið sýndi loks engin lífsmörk. Það tók 31 mínútu að drepa dýrið þrátt fyrir að aðstæður hefðu verið eins og best var á kosið,“ segir í yfirlýsingu Hvalavina. Samtökin segja MAST meta tilvikið þannig að skipverjar hefðu gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa hvalinn eins hratt og unnt var. Stofnunin lýsi 31 mínútna dauðastríðinu sem „mjög óheppilegu“ en telur engu að síður að unnið hafi verið samkvæmt reglugerð um veiðar á langreyðum og lögum um velferð dýra. Kalla eftir svörum Hvalavinir segja þessa niðurstöðu kalla á svör stjórnvalda og að lög sem eigi að verja dýr gegn óþarfa kvölum verði þýðingarlítil „ef langdregið og kvalafullt dauðastríð uppfyllir þau, svo lengi sem allir fylgja verklagi“. Þá segja samtökin enga þörf á að drepa stórhvali til að framleiða járnbætiefni en Hvalur hf. tilkynnti í vikunni að þau telji fullreynt að selja langreyðarkjöt á Japansmarkaði og segir nú að unnið verði járnbætiefni úr hvalkjötinu.
Hvalir Hvalveiðar Dýraheilbrigði Tengdar fréttir Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Sýslumaðurinn á Vesturlandi kyrrsetti í dag, að kröfu Hvals hf., skipið Bandero. Hvalur hf. telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og verður það kyrrsett til tryggingar fullnustu kröfunnar. 20. ágúst 2026 16:40 Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða. 18. ágúst 2026 07:32 Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra vinnur nú að undirbúningi brottvísunar. Brottvísanir geta verið misflóknar eftir aðstæðum og ríkisfangi og má búast við að framkvæmdin geti tekið allt frá nokkrum dögum til nokkurra vikna.“ 5. ágúst 2026 14:58 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira
Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Sýslumaðurinn á Vesturlandi kyrrsetti í dag, að kröfu Hvals hf., skipið Bandero. Hvalur hf. telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og verður það kyrrsett til tryggingar fullnustu kröfunnar. 20. ágúst 2026 16:40
Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða. 18. ágúst 2026 07:32
Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra vinnur nú að undirbúningi brottvísunar. Brottvísanir geta verið misflóknar eftir aðstæðum og ríkisfangi og má búast við að framkvæmdin geti tekið allt frá nokkrum dögum til nokkurra vikna.“ 5. ágúst 2026 14:58