„Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 30. ágúst 2026 01:49 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Vísir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að allir hljóti að finnast umræðan í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið óvægin. Hún segir tal um að konur eins og hún hafi verið til sölu í umræðunni vera ógeðfellt.
Sólveig Anna Jónsdóttir var áberandi í hópi Nei-sinna í kosningabaráttunni. Í viðtali við Bjarka Sigurðsson fréttamann sagðist hún vona að Nei-in hafi sigurinn en afar litlu munar á fylkingunum og Já-liðar með nauma forystu. „Stóri sannleikurinn úr þessari kosningabaráttu, úr þessari atburðarás er að þjóðin er klofin. Auðvitað er bara undarlegt að hugsa til þess að það hafi verið farið í þessa vegferð, það var ekki á dagskrá fyrir síðustu Alþingiskosningar,“ sagði Sólveig Anna og bætti við að hún myndi ekki vilja vera í sporum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra núna. „Þetta er undarleg staða fyrir þær að vera í.“ Segir baráttuna halda áfram Hún segir að barátta vinstri Nei-fólki muni halda áfram þó niðurstaðan úr atkvæðagreiðslunni verði að taka upp viðræður við ESB að nýju. „Þá þurfum við auðvitað að standa vaktina og tryggja það að okkar sjónarmið nái í gegn. Afstaða mín stendur óhögguð og mun gera það. Ég tel að hagsmunum Íslands sé alls ekki betur borgið innan Evrópusambandsins.“ Klippa: „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Hún segist hafa fylgst lengi með Evrópusambandinu, aðspurð hvort til sé sá samningur sem hún yrði ánægð með. „Eftir að hafa skoðað með mjög ítarlegum hætti stöðu verka- og láglaunafólks innan landa Evrópusambandsins, þá get ég ekki séð fyrir mér á neinum tímapunkti að ég myndi nokkru sinni geta sagt að hagsmunum verka- og láglaunafólks á Íslandi væri betur borgið innan vébanda Evrópusambandsins.“ „Það er mjög ógeðfellt“ Eftir þátttöku í umræðuþætti á RÚV á fimmtudag var persóna Sólveigar Önnu töluvert rædd á samfélagsmiðlum í tengslum við hennar afstöðu. „Ég held að okkur öllum hljóti að geta fundist þetta hafa verið óvægin kosningabarátta. Ég er ýmsu vön og ég er ekki barnanna best og ég get alveg verið mjög hörð en þessi andúð sem hefur birst í rosalega ljótum málflutningi um það að kalla konur eins og mig til sölu, það er mjög ógeðfellt.“ „Ég vona að fólkið sem hefur talað svona um mig og aðrar konur skammist sín og bíti aðeins í sápu og hugsi sig tvisvar um áður en það fer að tala svona aftur,“ sagði Sólveig Anna að lokum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Vinnumarkaður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira