Lífið

Þór­dís segir skilið við Fleka­skil

Birgir Olgeirsson skrifar
Dagur ætlar að halda hlaðvarpinu Flekaskil áfram þó svo að Þórdís Kolbrún hafi sagt skilið við það.
Dagur ætlar að halda hlaðvarpinu Flekaskil áfram þó svo að Þórdís Kolbrún hafi sagt skilið við það.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir hefur sagt skilið við hlaðvarpið Flekaskil sem hún stjórnaði ásamt Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar. Hlaðvarpið fjallaði um Ísland og alþjóðamál og hóf göngu sína þann 13. apríl.

Þórdís var þá þingmaður Sjálfstæðisflokksins en sjö dögum seinna, eða 20. apríl, lét hún af þingmennsku. 

 Tilkynnt var samdægurs að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði skipað Þórdísi sem sendiherra til fimm ára.

Af því tilefni ritaði Dagur færslu þar sem hann sagði að hlaðvarpið myndi að sjálfsögðu halda göngu sinni, sem það gerði með reglulegum hætti í sumar og er afraksturinn 20 þættir þar sem þau Þórdís og Dagur ræddu Ísland og alþjóðamálin.

Og Flekaskil halda áfram undir stjórn Dags þrátt fyrir að Þórdís hafi sagt skilið við hlaðvarpið því í nýjasta þættinum ræðir Dagur við Pipaluk Lynge, formann utanríkis- og öryggisnefndar grænlenska þingsins, um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.