Körfubolti

Sindri fær sænskan lands­liðs­mann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Craig Lecesne leikur í Bónus-deildinni í vetur.
Craig Lecesne leikur í Bónus-deildinni í vetur. Mynd/art-giants.de

Nýliðar Sindra hafa samið við körfuboltamanninn Craig Lecesne um að leika með liðinu á næsta tímabili í Bónus-deild karla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Craig er sænskur en lék með bandarísku háskólaliðunum Pepperdine og San José State á sínum tíma.

Eftir háskóla hefur leiðin legið víða um Evrópu og Craig hefur leikið í Svíþjóð, Spáni, Þýskalandi, Rúmeníu og Finnlandi. Hann er fæddur árið 1997 og er 197 sentímetrar á hæð.

Craig hefur einnig leikið með sænska A-landsliðinu. Sindri frá Hornafirði komst upp í Bónusdeildina á síðasta tímabili og munu leikmenn liðsins leika þar í fyrsta sinn í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×