„Það kostar peninga að afla peninga“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. september 2026 20:01 Inga Sæland og Kristrún svöruðu spurningum um fjárlög næsta árs þegar þær kynntu þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar í morgun. Vísir/Anton Brink Mennta- og barnamálaráðherra segir áherslumál Flokks fólksins og kostnaður þeirra fara vel saman með áætlunum ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjármagn. Fátækt kosti ríkið meiri peninga en ef ekkert er að gert. Forsætisráðherra segir að sérstaklega hafi verið staðið vörð um almenning þegar litið var til fjármögnunar fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár.
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi valkyrjanna í morgun þar sem þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var kynnt. Inga Sæland fór þar mikinn í sinni ræðu og lagði meðal annars áherslu á að öllum yrði tryggður fastur heimilislæknir, á öfluga uppbyggingu hjúkrunarheimila og tengingu örorku- og ellilífeyris við launavísitölu. Fjármálaráðherra kynnti á dögunum fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár, ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum upp á fimm milljarða. Hefur stjórnarandstaðan sagt þau áform hanga á bláþræði, allt þurfi að ganga upp svo að það raungerist. Inga segir þessi áform vel geta farið saman með áætlun ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög. Kostnaður við launavísitölutenginguna sé í kringum fjóra milljarða króna. „Í rauninni þá væri mér næstum sama hvað það kostaði, vegna þess að við ætlum að hætta að níðast á fátækasta fólkinu í landinu. Við erum bara að steinhætta því, það verður ekki á okkar vakt. Þannig liggur fyrir og ég gæti ekki verið stoltari hvað það varðar og ég frábið mér til dæmis málflutning þeirra sem börðust hatrammlega gegn því að við leiðréttum veiðigjaldið, þeirra sem berjast venjulega hatrammlega gegn því að við gerum nokkuð eitt einasta gagn í ríkisstjórninni, að þeir ætli að reyna að halda því fram að við sökkvum þjóðarskútunni með því að lyfta undir með okkar efnaminnsta fólki.“ Þá rifjaði Inga upp að Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefði látið gera árið 2023 um samfélagslegan kostnað fátæktar á Íslandi. „Sú skýrsla sýndi það að á hverju einasta ári kostar það okkur yfir hundrað milljarða króna að koma ekki í veg fyrir það að fólkið okkar sé að glíma við fátækt, hvorki meira né minna. Við erum að laga þetta, við erum að leiðrétta þetta, það kostar peninga að afla peninga, þannig er það nú oft á tíðum.“ Hafi sérstaklega verið gætt að gjaldtöku á almenning Þá tók Kristrún til máls á eftir Ingu. Hún sagðist vilja vekja athygli á því að skýrt kæmi fram í fjárlögum hvernig hallaleysi væri náð. „Þetta eru svona í kringum áttatíu milljarðar í aðgerðum, annars vegar á útgjaldahliðinni, sem er stærri hlutinn af þessu 44 milljarðar og svo á tekjuhliðinni, 34 milljarðar. Þarna er aukið aðhald, það er mjög takmarkað flatt aðhald, það er farið í sértækar útgjaldaráðstafanir, ég hvet fólk bara til þess að kynna sér það.“ Þá sagði hún að það væri ekki rétt sem komið hefði fram að það væri verið að hæga á fjárfestingu, um væri að ræða heimildir til opinberra framkvæmda sem hefðu fests í kerfinu, það kerfi væri styrkt með nýjum fjárlögum. Þá vék hún sér að gjaldtöku og sagði að ríkisstjórnin væri að hækka bankaskatt og setja ákveðnar álögur á ferðaþjónustu með nýju gjaldi á ferðamenn. „Það hefur lengi verið kallað eftir því að það sé litið til þess að það sé greitt fyrir notkun á okkar sameiginlegu auðlindum hér, sem erlendir ferðamenn eru að nota og þetta mun ekki eiga við Íslendingana. Ég vil hinsvegar segja að af þessum tæpu áttatíu milljörðum í aðgerðir til þess að loka gatinu þá er kannski um fimmtán milljarðar sem falla með beinum hætti á íslenskan almenning, og það er fyrst og fremst út af verðlagsuppfærslum. Þannig það var sérstaklega passað upp á íslenskan almenning í þessu samhengi.“ Horfa má á blaðamannafundinn í heild sinni hér fyrir neðan.
Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Tengdar fréttir Kynntu þingmálaskrá vetrarins Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu þingmálaskrá fyrir komandi þingvetur á blaðamannafundi. Hægt er að sjá fundinn í heild sinni hér fyrir neðan. 8. september 2026 08:31 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Kynntu þingmálaskrá vetrarins Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu þingmálaskrá fyrir komandi þingvetur á blaðamannafundi. Hægt er að sjá fundinn í heild sinni hér fyrir neðan. 8. september 2026 08:31