Húðdrottning bauð í gellugusu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 14. september 2026 20:02 Helga Sigrún bauð gellum í gusu og kynnti nýja vöru frá Dóttir Skin. Ólafur Alexander Húðdrottningin Helga Sigrún Hermannsdóttir, eigandi húðvörumerkisins Dóttir Skin, bauð vel völdum gellum í gusu á laugardaginn til að fagna nýrri vöru. Þar komu saman áhrifavaldar, athafnakonur, fyrirsætur og fleiri skvísur og svitnuðu vel saman í sólinni.
Tilefnið var nýtt rakakrem og var viðburðurinn haldinn í Litla Saunahúsinu á Kársnesi. Rakakremið er önnur varan í vörulínunni Alda ['al:ta], sem heitir í höfuðið á Öldu, ömmu Helgu Sigrúnar, og fylgir í kjölfar Alda ['al:ta] Essence Serum, sem kom á markað síðasta sumar og varð fljótt söluhæsta vara fyrirtækisins. Að sögn Helgu Sigrúnar, stofnanda og rannsóknar- og vöruþróunarstýru Dóttir Skin, var rakakremið beint svar við óskum viðskiptavina. „Frá því að serumið kom út hefur ein spurning svona verið sérstaklega oft spurð: Hvenær kemur rakakrem? Nú er það komið,“ segir Helga Sigrún glöð í bragði. Dóttir Skin framleiðir Alda ['al:ta] vörulínuna á Íslandi og hefur frá upphafi lagt áherslu á einfaldar formúlur án ilmefna og óþarfa aukaefna. Í aðdraganda kynningarinnar opnaði Dóttir Skin biðlista fyrir nýja vöru án þess að gefa upp hver hún væri. @heeelgasigrun 600 manns á biðlista🤍 Helga Sigrún fyrir 3 árum í miðjunni á þyngsta róðri lífs míns hefði aldrei trúað því að Dóttir Skin hefði actually raungerst og hvað þá gengið svona vel og svona hratt. Takk fyrir allt. Forsala hefst á mánudaginn<3 #hermannsdóttir ♬ original sound - helga sigrún „Þrátt fyrir það skráðu 726 manns sig á listann. Þeir fengu í dag forskot á forsöluna og aðgang að því að tryggja sér eintak en almenn sala hefst á morgun. Það er stórkostleg tilhugsun að hugsa til þess að yfir 700 manns hafi skráð sig á biðlista án þess svo mikið sem vita hvað hún kostaði. Ég játa að ég bara grét, mér líður eins þetta sé mögulega svona tímamótadæmi í sögu Dóttir Skin,“ segir Helga Sigrún meyr að lokum. Hér má sjá vel valdar myndir frá gusugleðinni: Ellen Helena, Lára Portal, Hekla Sif Magnúsdóttir, Ásta Margrét, Silja Geirsdóttir, Kara Hólm, Helga Sigrún og Guðlaug Elísa í gusugírnum.Ólafur Alexander World Class pæjurnar Birgitta Líf og Ásthildur Bára mættu í stuði.Ólafur Alexander Helga Sigrún eigandi Dóttir Skin naut sín í gusunni hjá Litla sánahúsinu.Ólafur Alexander Elín Ísold, Silja Geirsdóttir og Ásgerður Diljá létu sig ekki vanta á viðburðinn.Ólafur Alexander Ásthildur Bára, Tara Sif, Birgitta Líf og Helga Sigrún slá á létta strengi.Ólafur Alexander Huggulegheit. Ólafur Alexander Ásthildur Bára, Tara Sif og Birgitta Líf.Ólafur Alexander Helga Sigrún og Guðlaug Elísa.Ólafur Alexander Ásgerður Diljá í góðum gír.Ólafur Alexander Eftir gusuna héldu gestir inn í kofa hjá Litla sánahúsinu og prófuðu nýju vöruna.Ólafur Alexander Birgitta Líf prófar nýju vöruna.Ólafur Alexander Guðlaug Elísa og Helga Sigrún eru bestu vinkonur en Guðlaug hefur setið fyrir í herferðum Dóttir Skin.Ólafur Alexander Systurnar Helga Sigrún og Ásta Margrét.Ólafur Alexander Helga Sigrún sátt með viðburðinn.Ólafur Alexander Gott að kæla sig í sjónum.Ólafur Alexander Helga Sigrún var í skýjunum með móttökurnar.Ólafur Alexander Silja Geirsdóttir pílatespæja.Ólafur Alexander Silja Geirsdóttir, Ásgerður Diljá og Brynja Þórðardóttir stilla sér upp fyrir mynd.Ólafur Alexander Skvísurnar fylgdust vel með kynningunni.Ólafur Alexander
Gufuböð Samkvæmislífið Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Fleiri fréttir Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Sjá meira