Körfubolti

Njarð­vík spáð toppsætinu og ný­liðarnir verma botninn

Andri Broddason skrifar
Njarðvík er spáð toppsæti deildarinnar en FJölni er ekki spáð góðu gengi.
Njarðvík er spáð toppsæti deildarinnar en FJölni er ekki spáð góðu gengi. Hulda/Vísir

Mikil spenna er fyrir Bónus-deild kvenna í ár og hefst tímabilið formlega í kvöld. Þar mætast Íslandsmeistarar Njarðvíkur gegn bikarmeisturum Keflavíkur í keppni um hver er meistari meistaranna.

Bónus-deild kvenna hefst svo á þriðjudaginn en mikil spenna er fyrir komandi tímabili. Formenn, fyrirliðar og þjálfarar í Bónus-deild kvenna hafa spáð fyrir hvernig deildin mun fara og er Njarðvík spáð toppsæti deildarinnar. Þar á eftir er Grindavík og KR í þriðja.

Samkvæmt spánni verða miklar sviptingar frá því hvernig deildin endaði á síðasta tímabili en Njarðvík er aftur spáð toppnum. Val, sem lenti í öðru sæti í deildinni á síðasta tímabili, er nú spáð sjöunda sæti. Grindavík endaði síðasta tímabil í fimmta sæti en er spáð öðru sætinu á þessu tímabili.

Nýliðunum í Fjölni er spáð í neðsta sæti deildarinnar og er lítil von innan deildarinnar að liðið nái að fara hærra.

Spá formanna, fyrirliða og þjálfara í Bónus-deild kvenna

1. Njarðvík

2. Grindavík

3. KR

4. Haukar

5. Tindastóll

6. Keflavík

7. Valur

8. Stjarnan

9. Ármann

10. Fjölnir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×