Innlent

Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Yfirlit yfir lokanir morgundagsins.
Yfirlit yfir lokanir morgundagsins. Vegagerðin

Breiðholtsbraut verður lokuð að hluta til frá því snemma í fyrramálið og langt fram á kvöld vegna malbikunarframkvæmda.

Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið.

Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin og vinstri beygja inn á Breiðholtsbraut frá Vatsnendahverfi sömuleiðis lokuð.

Vatsnendahvarfi verður lokað við Ögurhvarf og við Breiðholtsbraut og umferð beint um hjáleiðir um Vatsnendaveg og Arnarnesveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×