Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Rafn Ágúst Ragnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 26. september 2026 22:27 Hópurinn hjólaði þrettán hundruð kílómetra á einni viku. Vísir/Þorgeir Örn Tryggvason Hjólahópurinn Team Rynkeby afhenti Umhyggju, félagi langveikra barna og fjölskyldna þeirra, rúmlega 32 milljónir króna í dag. Féð safnaðist á liðnu ári samhliða undirbúningi hópsins fyrir um 1.300 kílómetra hjólaferð frá Danmörku til Parísar. „
Við erum virkilega stolt af árangrinum okkar og það er rosalega gaman að fá að afhenda svona félagi svona upphæð,“ segir Elvar Jónsson, liðsstjóri Team Rynkeby. Söfnunin stendur yfir nær allt árið. Nýtt lið er valið á haustin og þá hefst bæði æfingatímabilið og fjáröflunin. Stór hluti fjárins kemur frá fyrirtækjum sem kaupa pláss fyrir merki sín á hjólabúningum liðsins. Þá stendur hópurinn fyrir ýmsum viðburðum yfir árið og rennur allt sem safnast til Umhyggju. Yfir 50 á hitamælinum Hápunktur verkefnisins er síðan hjólaferðin sjálf. Liðið hjólar frá Danmörku til Parísar, um 1.300 kílómetra á einni viku. Elvar segir hjóladagana jafnan vera átta til tíu klukkustunda langa. „Þetta er mjög mikið álag,“ segir hann. Ferðin í ár gekk að hans sögn nánast fullkomlega og engin slys urðu á leiðinni. Síðustu dagana þurfti hópurinn þó að glíma við mikla hitabylgju. Tékkinn kominn til Umhyggju.Þorgeir Örn Tryggvason „Hitamælarnir okkar voru að fara yfir 50 gráður en svona opinberi hitinn var að fara yfir 40,“ segir Elvar. Hópurinn brást við hitanum með því að drekka mikið og leggja fyrr af stað á morgnana til að forðast heitasta hluta dagsins. Skilaboðin að heiman hjálpa Á leiðinni fá hjólreiðamennirnir sérstök umslög með hvatningarskilaboðum frá langveikum börnum og foreldrum þeirra. Elvar segir þau skipta miklu þegar þreytan fer að segja til sín. „Eftir tvo, þrjá daga þá er þetta orðið erfitt og þá að geta sest upp í rúm og lesið skilaboð að heiman, það hjálpar manni alltaf.“ Skilaboðin séu frá börnunum og fjölskyldum þeirra sem söfnunin er ætluð að styðja. „Þetta eru svona hvatningarskilaboð og þau virka.“ „Þarna er maður að uppskera“ Elvar hefur sjálfur tekið þátt í verkefninu níu sinnum. Þótt hann segist hafa mikið gaman af hjólreiðunum og ferðalaginu sjálfu sé afhending söfnunarfjárins hápunktur ársins. „Það gefur manni virkilega gott í hjartað. Ég hef mjög gaman af því að hjóla og ég hef gaman af því að vera í ferðalaginu en þetta er svona hápunktur ársins hjá mér. Þarna er maður að uppskera.“ Við afhendinguna gáfu þeir Ísleifi Inga Ævarssyni, sem greindist með eitilfrumukrabbamein í september á síðasta ári, sérstaka hjólatreyju. Ísleifi afhent treyjan.Vísir/Þorgeir Örn Tryggvason Elvar segir verkefnið ekki mögulegt án þeirra fjölmörgu sem leggi hönd á plóg. „Mig langar bara til þess að þakka öllum sem tóku þátt í þessu ferðalagi og öllum styrktaraðilunum sem gerðu okkur kleift að afhenda Umhyggju allt söfnunarféð.“
Börn og uppeldi Krabbamein Góðverk Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira