Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2026 12:40 Arna Lára Jónsdóttir sagði ríkið ekki geta náð niður verðbólgu eitt og sér. Almar Guðmundsson segir sveitarfélögin hafa rætt takmarkanir á gjaldskrárhækkunum frá því í vor og sumar. Vísir/Samsett Það væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann vill að ríkið fylgi fordæmi sveitarfélaganna og takmarki hækkanirnar við 2,5 prósent.
Almar var beðinn um viðbrögð eftir að Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, tók undir orð Páls Magnússonar þáttastjórnanda á Sprengisandi í gær um að hækkanirnar væru taktík til að geta lækkað þær síðar. „Ja, ef fólk ætlar að standa við ummæli um að þetta sé einhvers konar taktík þá lýsi ég nú furðu yfir því.“ Hann segist undanfarnar vikur hafa fundið fyrir vilja til að halda gjaldskrárhækkunum innan 2,5 prósenta. „Það voru auðvitað vonbrigði að fá fjárlagafrumvarpið fram sett eins og það var. En ég skynja að samtölin eru á öðrum stað en ég held að, sko, þetta er samvinnuverkefni og það er frekar undarlegt að ræða um það sem taktík.“ Vill að ríkið hoppi á vagninn Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á föstudag ályktun um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á næsta ári. Þar er lýst yfir vilja sveitarfélaganna til að leggja sitt af mörkum til að lækka verðbólgu og vexti. Jafnframt er kallað eftir sambærilegum takmörkunum hjá ríkinu og stofnunum þess og lögð áhersla á að kjarasamningar haldi. Almar var spurður hvort ríkisstjórnin ætti nú að lækka fyrirhugaðar hækkanir í 2,5 prósent án frekari skilyrða. Almar Guðmundsson gerir ráð fyrir að sveitarfélögin staðfesti í fjárhagsáætlunum sínum áformin um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta.Vísir/Arnar „Já, það væri best að ríkið myndi hoppa á vagninn með okkur og auðvitað hafa verið samtöl í þá veruna en það er orðið brýnt að ríkið stígi þá fram með sína fyrirætlun og þau hafa þá þetta nesti að sveitarfélögin og jafnvel fleiri aðilar hafa stigið inn í umræðuna.“ Hann bætir við: „Það er allavega ljóst að forsendur fjárlagafrumvarpsins eru ekki það sem við þurfum í baráttunni um verðbólguna.“ „Jú, það var taktík“ Ummæli Örnu Láru féllu þegar hún og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, ræddu fjárlagafrumvarpið á Sprengisandi. Í frumvarpi sem fylgir fjárlagafrumvarpinu er lagt til að svonefndir krónutöluskattar hækki almennt um 5,2 prósent. Það eru skattar og gjöld sem ákveðin eru sem tilteknar krónufjárhæðir, meðal annars bifreiðagjald og gjöld á áfengi og tóbak. Stefán Vagn sagði verðbólguvæntingar hafa hækkað og taldi einkennilegt að heyra Örnu Láru fagna ábyrgð sveitarfélaganna þegar ríkið hefði sjálft lagt til 5,2 prósenta hækkanir. „Var það ekki bara taktík til að geta lækkað þetta síðan?“ varpaði Páll fram. „Jú, það var taktík,“ skaut Arna Lára inn í. Stefán Vagn brást strax við: „Já, ókei, þannig að eru fleiri svona taktískar brellur í fjárlagafrumvarpinu sem fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og þingið ættu kannski að fá upplýsingar um?“ Stefán Vagn Stefánsson spurði hvort fleiri „taktískar brellur“ væru í fjárlagafrumvarpinu eftir að Arna Lára Jónsdóttir tók undir að boðaðar hækkanir væru taktík til að geta lækkað þær síðar. Hann sagði það ný tíðindi fyrir sig, eftir langa setu í fjárlaganefnd, að heyra í útvarpsviðtali að fjárlögin væru taktísk brella ríkisstjórnarinnar. Arna Lára vísaði til þess að forsætisráðherra hefði þegar rætt um að draga úr hækkununum í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins. Fleiri þyrftu að koma að borðinu. Stjórnvöld, sveitarfélög og fyrirtæki þyrftu að vinna með verkalýðshreyfingunni að því að ná niður verðbólgu. „Þetta er ekki einkamál stjórnvalda.“ Stefán Vagn taldi ríkið hafa átt að sýna fordæmi með því að leggja strax til 2,5 prósenta hækkanir og hvetja aðra til að fylgja. Þess í stað hefði Samband íslenskra sveitarfélaga tekið af skarið. Kristrún hafði rætt minni hækkanir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði áður rætt opinberlega um möguleikann á að draga úr hækkununum. Í umræðum um fjárlagafrumvarpið á Alþingi 10. september sagði hún að rætt hefði verið við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur um sumarið um hvort ríkið ætti að skuldbinda sig varðandi gjöldin og fyrirtæki gera eitthvað sambærilegt. Ákveðið hefði verið að bíða með slíkt átak fram á haust. Kristrún Frostadóttir sagði á Sprengisandi 13. september að gjaldahækkanir ríkisins gætu orðið minni ef viðræður við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur gengju vel.Vísir/Viktor Þremur dögum síðar sagði hún á Sprengisandi að hækkanir ríkisins gætu orðið minni ef viðræður við aðila vinnumarkaðarins gengju vel. Hún vildi einnig fá sveitarfélögin að borðinu, almenn tilmæli frá atvinnurekendum og vissu um stöðugleika á vinnumarkaði um haustið. „Við erum á þeim stað að gagnvart krónutöluhækkunum erum við í ákveðnum viðræðum,“ sagði Kristrún þá. Sveitarfélögin höfðu rætt málið frá því í vor Almar var spurður hvort ályktunin um 2,5 prósenta hámark hefði verið að frumkvæði sveitarfélaganna eða unnin í samráði við ríkisstjórnina. „Ja, það er nú svolítið sérstakt að þurfa að fara í skýringar á þessu. Það hefur verið umræða í samfélaginu. Það hafa einstök sveitarfélög stigið fram og þetta gerðist í vor og sumar þannig að það er algjörlega ljóst að við höfum verið að ræða þetta hjá okkur yfir lengri tíma.“ Landsþingið í síðustu viku hefði síðan gefið sveitarfélögunum tækifæri til að álykta sameiginlega um málið. Hann kveðst mjög ánægður með niðurstöðuna. Vill fyrst fá svör frá ríkisstjórninni Að lokum var Almar spurður hvort íbúar gætu treyst því að almennar gjaldskrár sveitarfélaganna hækkuðu ekki umfram 2,5 prósent, jafnvel þótt ríkið héldi sig við 5,2 prósenta hækkanir. „Ja, ég ætla nú að gefa forráðafólki ríkisstjórnarinnar ráðrúm til þess að svara þeirra hluta í þessari spurningu. Ég held að það sé fyrsta skrefið.“ Um afstöðu sveitarfélaganna segir hann: „Ég finn undirtón hjá sveitarfélögunum, það er vilji til þess að fara í þessa vegferð og ég geri ráðfastlega ráð fyrir því að í fjárhagsáætlun muni sveitarfélögin staðfesta það í takti við þá ályktun sem við höfum samþykkt.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Skattar, tollar og gjöld Fjárlagafrumvarp 2027 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira